• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 5. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Guðmundur les Katrínu og Guðna pistilinn

ritstjorn by ritstjorn
1. janúar 2020
in Fólk, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Áramótaræða forsætisráðherra, Hamfarahlýnun, Falsfréttir, Lygar, Loftslagsvá

Guðmundur Franklín Jónsson

Þannig er fyrirsögn á áramótakveðju Guðmundar Franklíns Jónssonar sem fer yfir nýársávarp Katrínar Jakobsdóttur og gagnrýnir það harðlega. Hægt er að hlusta á pistilinn hér að neðan.
Jafnframt gagnrýnir hann Guðna Jóhannesson harðlega og segir m.a. ,,Ekki láta glepjast. Guðni er ekki þjóðernissinni frekar en hæna er farfugl. Tökum öllu sem RÚV réttir að okkur með varúð því oftast nær liggur eitthvað að baki sem við sjáum ekki strax.“ Hægt er að lesa þann pistil neðar á síðunni

 ,,þessi sami forseti bæði skrifaði undir þriðja orkupakkann sem og að beita sér ekki gegn honum“

,,Það er hlægilegt að sjá RÚV og Friðjón, æðsta sölumann forsetans og hægri hönd Bjarna Ben, ætla sér nú að reyna að markaðssetja ESB-forsetann hann Guðna Th. sem þjóðernissinna. Það er fátt sem kom jafn glöggt fram í þessu nýársávarpi og um hvað kosningabaráttan mun snúast og hvernig RÚV ætlar að selja okkur forsetann.

Skrifaði undir þriðja orkupakkann

Við skulum ekki gleyma því að þessi sami forseti bæði skrifaði undir þriðja orkupakkann sem og að beita sér ekki gegn honum. Einnig hefur sitjandi forseti talað gegn þorskastríðinu, reynt að gera lítið úr hetjudáð þeirra Íslendinga sem börðust fyrir landhelginni og fiskinum okkar. Við eigum þessum hugdjörfu forfeðrum okkar mikið að þakka og án drengilegrar baráttu þeirra hefði verið lítið um lífsviðurværi á erfiðum tímum.

Við megum heldur ekki gleyma því að fyrrum formaður ESB flokksins, Viðreisnar, sagði: „Nú sátum við þarna við end­ann, Guðni Th. og ég, rúm­lega átta mán­uðum eftir að ég spjall­aði við hann og hvatti til for­seta­fram­boðs með til­heyr­andi plott­i.“ og viðurkenndi hann með því hvernig hann hefði plottað að koma Guðna Th. í framboð. Það sér hver heilvita maður að formaður ESB-flokks styður ekki forsetaefni sem er á móti ESB, enda er Guðni ESB sinni.

Guðni Th. studdi Icesave samningana

Að lokum má það alls ekki falla í gleymsku að Guðni Th. studdi Icesave. Hefði hann verið í brúnni á þessum tíma eru allar líkur á því að þjóðin hefði ekki fengið að kjósa og því orðið að kyngja fyrsta og versta samningnum, þ.e. Svavarssamningnum en Guðni sagði sjálfur í Grapevine þann 19. júní 2009: „Það getur verið að okkur líki Icesave-samningurinn illa, en hinn kosturinn er miklu verri og kannski er þetta það bezta sem við eða einhver annar gæti fengið.“
Kæru vinir. Ekki láta glepjast. Guðni er ekki þjóðernissinni frekar en hæna er farfugl. Tökum öllu sem RÚV réttir að okkur með varúð því oftast nær liggur eitthvað að baki sem við sjáum ekki strax.“

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?