Bíll valt á Hellisheiði í morgun en ökumaður og farþegar sluppu ómeiddir. Vegagerðin varar við hálku á Hellisheiði
Þá kemur fram að veginum um Nesjavallaleið hefur verið lokað og mun ekki opna aftur fyrr en í vor. Hálka er á Holtavörðuheiði, á Hringvegi 1 í Borgarfirði, Vatnaleið og Fróðárheiði, en hálkublettir eru víða.
Hálka er á Steingrímsfjarðarheiði en hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum. Hálka er á Öxnadalsheiði og á Eyjafjarðarbraut innan Hrafnagils en hálkublettir eru víða. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á öllum leiðum.
Þungatakmarkanir eru á brúnni yfir Skjálfandafljót á Norðausturvegi (85) fyrir vörubifreiðar yfir 3.500 kg að heildarþyngd og hópbifreiðar ætlaðar til að flytja fleiri en átta farþega. Hálka er á Fagradal, Fjarðarheiði, Heiðarenda og á Breiðdalsheiði. Hálkublettir eru víða.
Hálka eða hálkublettir eru víða á útvegum.


