• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 25. september 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Yfirlýsing fréttastjóra vegna erindis Samherja til stjórnar RÚV

Hafna kröfu stjórnenda Samherja

ritstjorn by ritstjorn
1. apríl 2021
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Stjórn RÚV hefur vísað frá þeirri kröfu stjórnenda Samherja að Helgi Seljan verði áminntur í starfi og meinað að fjalla frekar um málefni fyrirtækisins.

Stjórnin gat ekki komist að annarri niðurstöðu enda skýrt að stjórnin, sem Alþingi skipar, á enga aðkomu að ritstjórn. Samherji taldi stjórnendur fréttastofunnar og RÚV, sem sögðu úrskurð siðanefndar engin áhrif hafa á störf Helga, ekki skilja alvarleika niðurstöðu siðanefndar og leitaði því til stjórnarinnar. 

Stjórn RÚV hefur vísað frá kröfu stjórnenda Samherja

Afstaða stjórnenda RÚV mótast fyrst og fremst af því að fréttaflutningur Kveiks og fréttastofunnar var ekki til umfjöllunar hjá nefndinni frekar en störf Helga.  Sú umfjöllun stendur, sem fyrr. Ekki er um að ræða brot á starfsskyldum fréttamannsins.

Hvort sem menn telja ummæli Helga Seljan á samfélagsmiðlun viðeigandi eða ekki er fráleitt að slíta þau úr samhengi við þá aðför eða herferð sem fulltrúar Samherja hafa skipulagt gegn frétta- og blaðamönnum sem fjallað hafa um málefni fyrirtækisins síðustu misseri. Aðför sem hefur þann eina tilgang að kæfa gagnrýna umræðu og koma í veg fyrir að fréttamenn geti sinnt starfi sínu. Að skjóta sendiboðann svo upplýsingar skili sér ekki til almennings.

Rétt er að halda því til haga að umfjöllun fjölmiðla hefur fyrst og fremst snúist um upplýsingar um meint umfangsmikil brot félagsins sem eru til rannsóknar hér á landi sem erlendis.

Í ágúst síðastliðnum sendu útvarpsstjóri og fréttastjóri frá sér yfirlýsingu vegna ásakana sem stjórnendur Samherja settu fram í myndböndum gegn fréttamönnum RÚV og brutu þar með blað í íslenskri sögu. Þessi kerfisbundna atlaga fyrirtækisins er einsdæmi hér á landi og grafalvarleg. Í þeim fordæmalausu árásum felst lýðræðisleg ógn sem nauðsynlegt er að bregðast við.

Í persónulegum árásum stórfyrirtækja gegn einstaklingum felst ofbeldi sem ekki verður við unað. Það er ógerningur að slíta þau ummæli Helga, sem nefndin taldi brotleg, úr samhengi við þessa aðför.

Reykjavík 31.mars 2021

Rakel Þorbergsdóttir , Fréttastjóri RÚV

Úr yfirlýsingu útvarpsstjóra og fréttastjóra frá 8.ágúst 2019

,,Það er líklega einsdæmi að stórfyrirtæki leggi í persónulega herferð gegn blaðamanni með áratugareynslu. Þessi grófa árás þjónar þeim eina tilgangi að skaða mannorð fréttamanns RÚV, sem hefur hvorki falsað gögn né „átt við þau“ og trúverðugleika fréttastofunnar.

Helgi Seljan er einn öflugasti rannsóknarblaðamaður landsins og hefur kallað yfir sig reiði hagsmunaaðila með vinnu sinni, og nú herferð stórfyrirtækis gegn mannorði hans og æru. RÚV fordæmir þessa  aðför sem gerð er að fréttamanninum með tilhæfulausum ásökunum.

https://www.ruv.is/i-umraedunni/yfirlysing-ruv-vegna-birtingar-samherja-…

Skjöl
  • Yfirlýsing fréttastjóra, (203.27 KB)

Discussion about this post

  • Kona í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti karlmanns á sextugsaldri

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • 84 milljónir eða 215 milljónir – ,,Ekkert annað en opinber glæpastarfsemi“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Óánægð með rannsókn á eignatengslum í sjávarútvegi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Stærsti skjálftinn var 3,25 – Fimmtíu skjálftar hafa mælst

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Verð í Fríhöfninni – Allt að 43% dýrari á leiðinni heim

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?