• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 20. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

68% hækkun fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði á sex árum – FA skorar á sveitarfélögin að lækka álagningarprósentu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. júní 2021
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Stjórn Félags atvinnurekenda hefur samþykkt eftirfarandi ályktun, sem send hefur verið öllum sveitarfélögum í landinu: „Stjórn Félags atvinnurekenda skorar á sveitarfélög að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði við gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár til að bregðast við miklum hækkunum fasteignamats fyrir árið 2022.

Samkvæmt nýbirtu fasteignamati er hækkun mats atvinnuhúsnæðis 6,2% á landinu öllu; um 5,4% á höfuðborgarsvæðinu en um 8% á landsbyggðinni. Að óbreyttu þýðir þetta samsvarandi skattahækkun á fyrirtækin. FA bendir á að frá því að núverandi tekjumatsaðferð var tekin upp við útreikning fasteignamats atvinnuhúsnæðis fyrir árið 2015 og til ársins 2020 hefur álagður fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði á landinu hækkað úr tæplega 17 milljörðum króna í um 28,5 milljarða. Skattbyrði fyrirtækjanna hefur á þessum skamma tíma þyngst um 11,5 milljarða eða tæplega 68%, þrátt fyrir lækkanir einstaka sveitarfélaga á skattprósentu.

Við svo búið verður ekki unað lengur. Áframhaldandi þynging á skattbyrði fyrirtækjanna vegna húsnæðis dregur mátt úr atvinnulífinu, seinkar efnahagsbatanum eftir heimsfaraldurinn og skerðir getu fyrirtækjanna til að standa undir launagreiðslum sem um var samið í lífskjarasamningunum og eru grundvöllur útsvarstekna sveitarfélaganna.

Stjórn FA telur að hér verði hvert og eitt sveitarfélag að sýna ábyrgð og gera breytingar á sinni álagningarprósentu þannig að hækkanir á fasteignasköttum skaði ekki atvinnulífið í landinu meira en orðið er. FA skorar jafnframt á sveitarfélögin að taka upp viðræður hið fyrsta við ríkisvaldið um breytingar á þessu fráleita kerfi þar sem skattgreiðslur af húsnæði eru beintengdar við þróun fasteignamats og taka þannig sjálfkrafa hækkunum, án nokkurs tillits til gengis atvinnulífsins að öðru leyti.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Setja pólitíska hagsmuni sína í fyrsta sæti

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Líshættuleg líkamsárás er Palestínumenn og Íslendingar hittust

    68 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    114 deilingar
    Share 46 Tweet 29
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?