• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 13. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ásakaður um kynferðislega áreitni

Ásakaður um kynferðislega áreitni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. júlí 2024
in Erlent, Fréttir
A A
0

Fyrrverandi starfskonur World Economic Forum ásaka Klaus Schwab um kynferðislega áreitni

Gústaf Adolf Skúlason skrifar
Nokkrar starfskonur Alþjóðaefnahagsráðsins „World Economic Forum, WEF“ saka stofnandann Klaus Schwab um kynferðislega áreitni. Samkvæmt rannsókn „The Wall Street Journal„ stendur Schwab frammi fyrir kærum um kynferðislega áreitni og fyrir að skapa fjandsamlegt vinnuumhverfi.

Schwab sagði markvisst upp starfsmönnum yfir 50 ára til að lækka meðalaldur starfsmanna. Þegar starfsmannastjórinn Paolo Gallo neitaði að fylgja þessari tilskipun, þá rak Schwab hann. Árið 2017 sagði Schwab upp ungri konu sem leiddi frumkvöðlaverkefni eftir að hún sagði honum, að hún væri ólétt. Hann lýsti vanþóknun á að hún skyldi ekki geta unnið á sama hraða og sagði henni upp eftir stuttan reynslutíma.

Margar aðrar starfskonur greina frá svipuðum málum. Þeim var sagt upp eða urðu fyrir áföllum í starfi eftir að hafa orðið barnshafandi eða þegar þær snéru til baka til starfa eftir fæðingarorlof. Samtímis segjast aðrar konur hafa orðið fórnarlömb kynferðislegrar áreitni með kynferðislegum athugasemdum og óviðeigandi hegðun æðstu stjórnenda, sem sumir hverjir eru áfram við störf hjá WEF.

Klaus Schwab í fararbroddi kynferðisáreitis

Schwab, sem formlega hætti störfum sem framkvæmdastjóri WEF í síðasta mánuði, er lýst sem leiðandi í kynferðisáreiti frá æðstu stjórn fyrirtækisins. Eru margar sögur í gangi um að hann hafi áreitt starfskonur með óþægilegum ummælum sínum og hegðun. Kona að nafni Mryiam Boussina sagði:

„Ég vissi að honum líkaði við mig og ég vissi að honum fannst ég falleg. Þessir valdamiklu karlmenn, þeir halda að þeir geti fengið hvaða konu sem er og kunna ekki að skammast sín.“

Kona sem vann á WEF á tíunda áratugnum segir:

„Það var mikil þrýstingur á að vera falleg og klæðast þröngum kjólum. Ég hef hvergi neins staðar á ferli mínum upplifað, að útlitið sé jafn mikilvægt umræðuefni og hjá WEF.“

Önnur kona segir, að Schwab hafi komið með vísbendingar og jafnvel sett sig í líkamlegar stellingar fyrir framan hana. Eitt sinn óskaði hann þess, að hún væri frá Hawai svo hann gæti séð hana í slíkum búningi. Schwab sagði margoft við hana:

„Ég þarf að finna mann fyrir þig og ef ég væri ekki giftur þá væri ég efstur á á listanum.“

Neitar öllum ásökunum

Schwab hefur harðlega neitað öllum ásökunum og fullyrðir, að hann hafi ávallt hagað sér eins og herramaður. Talsmaður WEF segir:

„Herra Schwab tekur ekki og hefur aldrei tekið þátt í þeirri dónalegu hegðun sem þú lýsir.“ .

Hann bætti því við, að fréttir blaðsins myndu „vanvirða stofnun okkar, menningu og samstarfsmenn, þar á meðal stofnanda okkar.“

Undir forystu Klaus Schwab hefur WEF kynnt undir hugmynd um Endurræsinguna miklu „The Great Reset“ sem miðar að því að skipta út lýðræðislegum ríkisstjórnum fyrir alþjóðlegt stjórnkerfi svipað því sem kommúnistar hafa komið á í Kína.

Umræða
Share4Tweet3
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    58 deilingar
    Share 23 Tweet 15
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Hitinn getur farið yfir 28 stig – mögulegt að met verði slegin

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Veitingahúsið Eyri er fimm stjörnu og er við Hjalteyri

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Alvarlega slasaður vegna hnífsstungu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?