Stunginn með hnífi vegna deilu um bílastæði
Að sögn lögreglu, hafa í dag farið fram yfirheyrslur yfir mönnunum sem voru handteknir vegna hnífstunguárásar sem átti sér stað í gær við Krónuna í Grafarholti.
Málsatvik virðast hafa verið þannig að skapast hafi ósætti um lagningu ökutækis, slagsmál hafi brotist út sem enduðu með því að hnífur var dreginn upp í sjálfsvörn. Málið þykir að mestu upplýst og hefur öllum handteknu verið sleppt.
https://gamli.frettatiminn.is/2018/08/31/madur-stunginn/
Umræða