• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 16. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ungur maður í sjálfheldu í klettum í Tunguröð

Ungur maður í sjálfheldu í klettum í Tunguröð

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. september 2023
in Fréttir, Innlent
A A
0

Útkall barst rétt upp úr klukkan 20 í gærkvöldi og héldu björgunarsveitir frá Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Neskaupstað til aðstoðar.

Maðurinn var talsvert hátt uppi í fjallinu, og í snarbröttu klettabelti. Drónar voru notaðir til að staðsetja manninn og hafa yfirsýn yfir svæðið á meðan aðgerðir stóðu yfir.

Björgunarfólk hélt á fjallið með fjallabjörgunarbúnað, og tókst að komast upp fyrir manninn og síga niður til hans. Hann var þá orðinn kaldur og stirður og ljóst að hann myndi ekki geta gengið niður að sjálfsdáðum. Óskað var eftir þyrlu frá Landhelgisgæslu sem hélt af stað frá Reykjavík rétt upp úr klukkan 22.

Björgunarfólk hóf aðgerðir við að koma mannininum neðar í fjallið, svo þyrlan ætti hægara um vik að ná til hans, þegar hún kæmi á vettvang.

Settar voru upp tryggingar fyrir þá sem voru í fjallinu, og unnið að því að síga með mannin niður úr bröttustu klettunum. Það gekk vel og var þá hægt að búa hann undir að vera hífður upp í þyrluna.

Rétt fyrir klukkan eitt í nótt var hann svo hífður upp í þyrlu, og fluttur niður á flugvöllinn í Fáskrúðsfirði.

Björgunarfólk hélt þá niður fjallið með búnað sinn, og var aðgerðum lokið rétt fyrir þrjú í nótt, þegar Norðfirðingar voru komnir til síns heima.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • 120 félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness sviptir góðum tekjumöguleikum

    Hvað kom fyrir Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga?

    105 deilingar
    Share 42 Tweet 26
  • Hvert fóru þessir 23 milljarðar?

    130 deilingar
    Share 52 Tweet 33
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    120 deilingar
    Share 48 Tweet 30
  • Sam­eign þjóðarinnar – eða stærsta til­færsla auð­linda í sögu Ís­lands?

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?