• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 6. desember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Útgerðir strandveiðarbáta sameinist um enga stöðvun á næsta tímabili

Nýtt strandveiðikerfi í vinnslu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
1. desember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur undirritað reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin hefur tekið gildi.

Í reglugerðinni er tilgreint hvernig ráðstafa skuli afla sem dreginn er frá heildarafla, nánar tiltekið þeim afla sem tilheyrir almennum byggðakvóta, línuívilnun, skel- og rækjubótum og frístundaveiðum.

Leyfilegur heildarafli dróst saman milli ára samanber rg. 860/2025 sem þýðir að afli sem er til ráðstöfunar í byggðakerfi í sjávarútvegi (5,3% kerfið) dregst einnig saman. Að auki eru gerðar breytingar á ráðstöfun og vegna þeirra er gripið til sérstakra mótvægisaðgerða.

Til að milda áhrif af samdrætti verður aukið í úthlutun í sértæka byggðakvótann, sem Byggðastofnun ráðstafar til viðkvæmustu sjávarbyggðanna. Samhliða verður í almennum byggðakvóta aukið við ráðstöfun í öðrum tegundum en þorski.

Annmarkar kalla á breytingar

„Reglugerðin markar upphaf að stefnubreytingu stjórnvalda þar sem dregið er úr vægi úthlutunarflokka sem sætt hafa gagnrýni vegna annmarka. Ríkisendurskoðun hefur bent á að almenni byggðakvótinn sé staðnaður, skorti mælikvarða á árangur og að úthlutun sé oft ómarkviss, auk þess sem starfshópar verkefnisins Auðlindin okkar komst að þeirri niðurstöðu að línuívilnun og skel- og rækjubætur þjóni ekki lengur upphaflegum markmiðum.

Næsta verkefni verður heildarlöggjöf um byggðakerfið þar sem pottarnir verða endurskipulagðir frá grunni. Við erum vel á veg komin með nýtt strandveiðikerfi sem hefur það markmið að ýta undir jákvæð byggðaáhrif. Markmiðið er að úthlutun í byggðakerfinu verði gagnsærri og skili sér með óumdeildum og jákvæðum hætti til þeirra byggða sem á þurfa að halda,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

  • Skoða reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Seðlaban­kinn hætt­ir gjal­dey­r­is­kaup­um

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Barnavernd brást börnum og föður þeirra

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Kortisólskortur drepur – sterar bæla kortisól, segir Helga Ágústa innkirtlalæknir

    723 deilingar
    Share 499 Tweet 93
  • Ráðherra útskýrir ákvörðun vegna embættis skólameistara

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?