• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Daníel Bjarnason, tónlistamaður og hljómsveitarstjóri, hlaut íslensku bjartsýnisverðlaunin 2018

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. janúar 2019
in Ferðaþjónusta, Fólk
A A
0

Daníel Bjarnason, tónlistamaður og hljómsveitarstjóri, hlaut íslensku bjartsýnisverðlaunin 2018 sem afhent voru á Kjarvalsstöðum í dag.  Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein milljón króna í verðlaunafé.

Bjartsýnisverðlaunin 2019
Daníel Bjarnason hlaut verðlaunin

Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. Upphafsmaður þeirra var danski athafnamaðurinn Peter Bröste en álverið ISAL í Straumsvík hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá því að Bröste dró sig í hlé árið 2000. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari verðlaunanna.
Í dómnefnd verðlaunanna eru Þórunn Sigurðardóttir, Magnús Geir Þórðarson, Rannveig Rist og Örnólfur Thorsson.
Daníel Bjarnason er fæddur árið 1979. Hann stundaði nám við Tónlistarskóla FÍH og Tónlistarskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan árið 2003. Hann stundaði framhaldsnám í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Freiburg í Þýskalandi á árunum 2004–2007.
Af hljómsveitum sem hann hefur unnið með má nefna Fílharmóníusveitir Los Angeles og New York, sinfóníuhljómsveitirnar í Toronto, Tókýó og Gautaborg, Philharmonia, London Symphony Orchestra, Fílharmóníusveit BBC, Britten Sinfonia og Asko/Schoenberg Ensemble auk Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hljómsveitar Íslensku óperunnar.
Á síðasta ári voru m.a. frumflutt tvö ný verk eftir Daníel. Annars vegar var um að ræða óperuna Brothers, sem byggð er á samnefndri kvikmynd Susanne Bier, og var sýnd á vegum dönsku þjóðaróperunnar í Árósum. Sýningin var valin tónverk ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum og hlaut einnig Reumert-verðlaunin sem ópera ársins í Danmörku.  S
Bjartsýnisverðlaunin 2019
Daníel Bjarnason hlaut verðlaunin

Hitt verkið er nýr fiðlukonsert sem Pekka Kuusisto og Fílharmóníusveit Los Angeles frumfluttu í Hollywood Bowl undir stjórn Gustavo Dudamel. Í kjölfarið hefur Kuusisto flutt konsertinn margoft á tónleikum í Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi og Bandaríkjunum m.a. undir stjórn Esa-Pekka Salonen og Osmo Vänskä.
Um síðastliðna helgi var leiksýningin Ríkharður III frumsýnd með tónlist Daníels Bjarnasonar í Borgarleikhúsinu og á nýársdag var upptaka af sýningu Íslensku óperunnar Bræður sýnd Rúv.
Daníel hefur verið staðartónskáld hjá Frits Philips Muziekgebouw í Eindhoven síðan 2016.  Hann gegndi einnig stöðu staðarlistamanns hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands 2015-2018. Daníel hefur gefið út hljómdiska undir fána Bedroom Community og Sono Luminus.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?