
Mikil óánægja er með hversu litlu munar á verði á eldsneyti hjá Costco og öðrum bensínstöðvum. Costco hefur alltaf verið með lægsta verðið á Íslandi og stöðvar í nágrenni hafa verið með sín lægstu verð þar, en hærri verð eftir því hve langt stöðvarnar eru frá Costco.
,,Þetta þýðir að gjaldið fyrir Costco-aðildarkortið mun ekki lengur borga sig jafn fljótt við kaup á eldsneyti, og heldur ekki einfaldlega borga sig að aka þangað sérstaklega, bara til að taka eldsneyti.“ Segir viðskiptavinur Costco en í raun hefur Costco stýrt verði á eldsneyti hérlendis frá upphafi starfsemi sinnar sem byrjaði með lágt eldsneytisverð sem og vöruverð á Íslandi í dagvöruversluninni. Neytendum ber saman um að sá mikli munur sé ekki lengur til staðar sem var í upphafi. Til dæmis munar nú bara einni krónu á líternum á Akureyri, Selfossi og í Borgarnesi og á verði í Costco en allir sjá að flutningskostnaður þangað er töluverður.
Formaður FÍB býst jafnvel við frekari lækkun – stöðvarnar elta hverja aðra í verðlagningu
„Af því að félögin hafa ekki skilað þeirri lækkun sem hefur verið á heimsmarkaði síðustu vikurnar. Þannig að það var smá fjör í nótt af því að við sáum það að til að mynda Orkan lækkaði dísilolíuna til að byrja með um 80 krónur en nokkrum mínútum síðar var búin að bæta við ríflega 7 krónum í viðbót í lækkun. Það kom til af því að Atlantsolían var þarna á milli að lækka um 87. Við skulum bara vona að menn verði svona á tánum áfram,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB í viðtali við ríkisútvarpið. – Upplýsingar um eldsneytisverð á Íslandi

