• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 6. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fallist á grunnatriði kjarasamnings

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Efling og samflotsfélög í kjaraviðræðum hafa fallist á grundvallaratriði kjarasamnings við Samtök atvinnulífsins. Meðlimir samninganefndar Eflingar – stéttarfélags funduðu ásamt forystu félagsins í gærkvöld í húsakynnum Ríkissáttasemjara þar sem rætt var ítarlega um inntak viðræðna síðustu daga og þann grundvöll sem þar hefur loks myndast.
Þessi grundvöllur varð til í gegnum stífar viðræður Eflingar og samflotsfélaganna VR, LÍV, Framsýnar, VLFA og VLFG við Samtök atvinnulífsins síðustu daga.
Að höfðu samráði við félagsmenn ákvað formaður Eflingar að aflýsa verkfallsaðgerðum og vinna að lokagerð samnings. Mun sú vinna hefjast strax í dag, auk þess sem leitað verður eftir viðbrögðum frá stjórnvöldum en aðkoma þeirra er mikilvægur fyrirvari um undirritun samnings þegar þar að kemur.
„Niðurstaðan í þessum viðræðum er ekki fullnaðarsigur heldur vopnahléslína milli stéttar verkafólks og stéttar auðmagnseigenda. Baráttan milli þeirra heldur áfram. Ég er sátt við að við höfum fengið fram grundvöll til þess að loka samningi eftir langar og strangar kjaraviðræður,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir. „Félagsmenn okkar hafa auðvitað síðasta orðið um hvort þeir samþykkja samning í atkvæðagreiðslu eða ekki. En ég held að með þessum samningsgrundvelli hafi náðst að koma til móts við kröfur okkar félagsmanna um lífskjarabót.“
Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Eflingar sagði stálinn stinn hafa mæst á lokametrum samningagerðarinnar. „Hér skipti miklu máli pressan sem verkfallsaðgerðir okkar sköpuðu, samtakamáttur félagsmanna og sá mikli meðbyr sem við höfum fundið í samfélaginu við kröfur Eflingar og bandalagsfélaga okkar,“ sagði Viðar.
Efling undirbýr nú áætlun um kynningu komandi samnings meðal félagsmanna, á félagsfundum og með kynningarefni. Trúnaður hvílir enn sem komið er um inntak viðræðna.
Það stendur upp á stjórnvöld hvort samkomulagið gangi upp, segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR um þá vinnu sem nú er í gangi en hann hefur lýst því yfir að samningar þurfi að nást við báða aðila svo að dæmið gangi upp.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    92 deilingar
    Share 37 Tweet 23
  • Hömlulausar netaveiðar í Ölfusá – Villti laxastofninn er í útrýmingarhættu

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    184 deilingar
    Share 74 Tweet 46
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?