• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 30. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Harmar að Vilhjálmur Birgisson hafi sagt af sér

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. apríl 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Yfirlýsing vegna afsagnar 1. varaforseta ASÍ

Ég harma að Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness hafi sagt af sér sem 1. varaforseti ASÍ. Vilhjálmur hefur verið óþreytandi baráttumaður fyrir bættum hag verkafólks og heimila og öflugur bandamaður minn og Eflingar á síðustu árum. Mikill missir er að honum úr sæti varaforseta Alþýðusambandsins.
Vegna vísunar í umræður á vettvangi samninganefndar ASÍ vil ég taka fram að ég hef fyrir hönd Eflingar hafnað því með öllu að frekari byrðum vegna Covid-19 faraldursins, umfram það sem þegar er, verði velt yfir á vinnandi fólk.

Afstaða mín er sú að ef frekari stuðningsaðgerða við vinnumarkaðinn sé þörf þá eigi ríkið að standa við fyrirheit sín um viðbótaraðgerðir, til dæmis með frekari rýmkun hlutabótaleiðinnar eða tímabundinni lækkun tryggingagjalds.
Mikið svigrúm er til staðar í fjármálum hins opinbera og núverandi aðgerðapakki enn talsvert minni en það sem sést hefur hjá nágrannalöndum. Meðan svo er get ég ekki fallist á að verkalýðshreyfingin gefi afslátt af kjörum sinna félagsmanna, allra síst láglaunafólks sem nú þegar berst í bökkum og hefur gert lengi. Ég hafna því að verkalýðshreyfingin taki frumkvæði að tillögum um slíkt. Þessu hef ég komið skýrt á framfæri á vettvangi Alþýðusambandsins.
Engum dylst að miklir gallar eru á mörgum þáttum íslenska lífeyriskerfisins, en það getur ekki þýtt að láglaunafólk sem þiggur smánarlega lágar lífeyrisgreiðslur við starfslok eigi að nota þær greiðslur til að kaupa atvinnurekendur frá kostnaði við að standa við kjarabætur sem unnust með harðri baráttu verkafólks.
Ég hvet til þess að verkalýðshreyfingin standi saman og vinni af yfirvegun við úrlausn þeirra miklu verkefna sem við okkur blasa vegna Covid-19 veirufaraldursins.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Laxveiðiám lokað fyrir stangaveiði vegna laxeldis

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Reimar Pétursson og Matthías G. Pálsson skipaðir í embætti við Endurupptökudóm

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • Strandveiðar hefjist 15. mars til fyrsta október

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Fýlustjórnun, þagnarbindindi og hunsun eru gereyðingarvop

    56 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?