• 442.is
  • Veiðin.is
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
  • Innskráning
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Auglýsingar
Hafa samband
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is
Ekkert fannst
View All Result
Fréttatíminn.is
Ekkert fannst
View All Result
AUGLÝSING

Íslensk útgerðarfyrirtæki eru þurfalingar, ómagar og afætur í íslensku þjóðfélagi

Þeir sem vinna í sjávarútvegi eru ríkisstarfsmenn

Ritstjórn Fréttatímans eftir Ritstjórn Fréttatímans
2. apríl, 2021
0 0
Kvótinn innkallaður og útgerðarmenn sviptir veiðiheimildum

Einn listamaður gæti greitt meira til þjóðarinnar en allur sjávarútvegurinn til samans – Kvótann á markað

Leggjum niður sjómannaskólann og stýrimannaskólann og hættum að útskrifa skipstjóra á Íslandi. Það er ekki til neins að ríkið sé að reka svona stofnanir fyrir útgerðar Elítuna og kvótaþegana. Því að þeir mætu ungu menn sem hafa áhuga á að stýra fiskiskipum við Ísland munu aðeins fá vinnu hjá ósjálfbjarga fyrirtækjum á Íslandi sem eru hreppsómagar, hvar sem þeir eru niður settir í sveitum landsins.

Jón Gunnarsson frkv.stj. skrifar

Íslensk útgerðarfyrirtæki eru þurfalingar og ómagar og afætur í íslensku þjóðfélagi og þar með útgerðarmennirnir sjálfir. Þessi fyrirtæki eru á bænum, borginni og ríkinu og skila litlu sem engu til samfélagsins. Ef við fengjum erlend fyrirtæki til að leigja af okkur kvótann fengi þjóðin 20 sinnum hærra verð, já 20 falt hærra verð. Í dag er ríkið að niðurgreiða sjávarútveginn og þannig hefur það verið í mörg ár. Ríkisstyrktur sjávarútvegur, Þeir sem vinna í því sem var einu sinni undirstöðu atvinnugrein á Íslandi eru núna ríkisstarfsmenn.

Þeir stela af sjómönnum sem strita fyrir þá myrkrana á milli 24/7 x 365 daga ársins, stela af okkur öllum, þjóðinni. Siðblindan er 100% og brotaviljinn einnig. Stjáni Blái Samherjaráðherrann neyðist núna að hætta þar sem þjóðin mun aldrei kjósa hann á ný, tjöldin féllu, en við blasti að hann er Samherjaprins allt, frá því hann reddaði þeim Guggunni frá Ísafirði, dulbúinn sem bæjarstjóri þar á bæ, til dagsins í dag í boði X-D. Svona má lengi telja og aldrei að vita nema ég nenni að fletta enn frekar ofan af þessari viðbjóðslegu mafíu, ég veit svo margt og sú vitneskja nær löngu fyrir kvótakerfið.

Verr er farið með fólk á Íslandi en Namibíu

Íslendingar voru einu sinni stoltir af hetjum hafsins og útgerðarmönnum til ca. ársins 1980, þá var haldinn sjómannadagur, nú er búið að þynna það út í hátíð hafsins, hvað er það? Bara enn eitt bullið!  Mörg lög og sögur voru samdar þegar útgerð var í lagi og sjómenn voru stolt þjóðarinnar og síldin bjargaði þjóðinni á sínum tíma, en þegar kvótakerfið breyttist í eignastýringu fyrir braskara og fjárglæframenn, jafnvel glæpamenn, þá breyttist ásýndin, það er það sem við horfum á í dag.  ,,Glæpasamfélag ” – Vill þjóðin það?

Nýleg könnun segir að aðeins 25% séu hlynnt kvótakerfinu eins og við vitum að fólk er mis vel gefið og þetta er sá hópur sem er illa gefinn og á varla tilverurétt, ættað úr 101 Latte. Person no grade. Að þessir svokölluðu útgerðarmenn vogi sér að greiða aðeins 16 krónur í auðlindarentu til þjóðfélagsins er skömm og svívirða gagnvart þjóðinni sem á fiskinn í sjónu. Skömm, svik og landráð!! Stangaveiðimenn sem veiða aðeins 25% af árinu, greiða meira til samfélagsins. Svik og þjófnaður við þjóðina er staðreynd! Við ættum að leggja meira fé í listir, tónlistamaður sem nær að slá í gegn, mun afla mun meira en allur sjávarútvegur á Ísland til samans og mun ekki svíkjast undan að greiða til samfélagsins eins og nú er raunin.

En siðblinda er ólæknandi, og ekki gott þegar hún er landlæg og ríkisstjórnin öll helsjúk frá vinstri til hægri, þá er ekki von á neinu góðu. Stólastjórnin lokar augunum, það er svo gott að sitja á rassgatinu með 2 milljónir á mánuði, frían bíl og bús 24/7, og öll tengsl við raunveruleikann löngu horfin. Viðbjóður!

En þetta er kosið ár eftir ár, áratug eftir áratug. Einstein sem er með hæstu greindarvísitölu sem mælst hefur, sagði ,,ef þú gerir sama hlutinn ítrekað með sömu niðurstöðu en býst við annari niðurstöðu, þá er það skilgreining á heimsku.”  Á þessi gáfaðasti maður heims. fyrr og síðar, um þig?

Veiðigjöldin duga ekki fyrir nýju varðskipi – 8,8 milljarða reikningur til skattgreiðenda

 

 

 

Deila474TweetDeila
Ritstjórn Fréttatímans

Ritstjórn Fréttatímans

Umræða

Auglýsing

Mest lesið í dag

  • Á bráðamótöku með stunguáverka eftir líkamsárás

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Brýnt að jafna kynjahlutföll á skipum

    0 deilingar
    Deila 0 Tweet 0
  • Así vill koma í veg fyrir þrælahald og mannsal á íslenskum farskipum

    46 deilingar
    Deila 46 Tweet 0
  • Íslensk útgerðarfyrirtæki eru þurfalingar, ómagar og afætur í íslensku þjóðfélagi

    474 deilingar
    Deila 474 Tweet 0
  • Óréttlæti og valdníðsla

    43 deilingar
    Deila 43 Tweet 0
Fréttatíminn.is

Fréttatíminn er óháður miðill

Fréttatíminn © 2020

Ekkert fannst
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsendar greinar
  • Afþreying
  • Veiðin.is

Fréttatíminn © 2020

Velkomin/n!

Skráðu þig inn hér fyrir neðan

Gleymt lykilorð?

Búa til aðgang!

Fill the forms bellow to register

Það þarf að fylla inn alla reiti. Innskráning

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Innskráning
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?