Ragnhildur Þórðardóttir sem er betur þekkt sem Ragga Nagli, er nóg boðið hvernig komið er fram við forsetaframbjóðandann Baldur Þórhallsson
Ragnhildur er sálfræðingur og lærður einkaþjálfari og bendir hún á að ljósmynd af Baldri hefur verið dreift undanfarnar vikur á netinu. Myndin sem um ræðir var tekin á skemmtistað í París. Ýmsar athugasemdir hafa verið gerðar við myndina og sumir hafa kallað staðinn kynlífsklúbb, en staðurinn skiptist niður á hæðar þar sem á efri hæð er hefðbundinn hinsegin bar og neðri hæðin helguð djarfari gestum.
,,Af því maðurinn sem er í framboði til forseta er samkynhneigður og staddur á skemmtistað sem í daglegu tali kallast hommabar.
Er það virkilega svo að gamlar rykfallnar ljósmyndir séu dregnar upp úr koffortinu til að rýra trúverðugleika fólks sem sækist eftir embætti forseta Íslands?“ Spyr Ragga nagli. Tekið skal fram að Baldur er í öllum sínum fötum á myndinni en andstæðingar framboðs hans hafa gagnrýnt hann harðlega og spurt hvort það sé forsetalegt að heimsækja svona staði?
Maður heldur utan um annan mann á ljósmynd og tær krumpast og efri varir krullast.
Af því maðurinn sem er í framboði til forseta er samkynhneigður og staddur á skemmtistað sem í daglegu tali kallast hommabar.
Er það virkilega svo að gamlar rykfallnar ljósmyndir séu dregnar upp úr koffortinu til að rýra trúverðugleika fólks sem sækist eftir embætti forseta Íslands?
Ætlum við líka að hamra á frambjóðendum sem hafa farið inn á strippstaði? Því líklega meirihluti hefur álpast inná slíka staði í galsa næturinnar.
Naglinn hefur allavega farið inn á strippstað. Líka hommabar. Og vafasaman næturklúbb í London fram á rauðan morgun. Og útihátíð alræmda fyrir fíkniefnaneyslu
Öll höfum við gert allskonar í gegnum tíðina. Lifað lífinu. Gert mistök. Það gerir okkur mannleg og reynslunni ríkari.
Á unglingsárunum drakk Naglinn vel og rækilega.
Var oft ótæpilega drukkin. Reykti pakka á dag. Prófaði fíkniefni. Var með stæla og leiðindi á djamminu. Tekin fyrir ölvunarakstur og missti prófið.
Gerir það Naglann að síðri manneskju?
Verr til þess fallin að sinna starfi sínu. Skerðir það mennsku, samkennd, innsýn, þekkingu, menntun, víðsýni að hafa gert hluti á djamminu?
Að þú sért verri fulltrúi þjóðar og sameiningartákn að hafa mögulega skellt þér á galeiðuna endrum og eins?
Þurfum við virkilega að hafa lifað púrítanalífi í munkaklaustri til að vera gjaldgeng sem forseti? Að einu myndirnar séu að tína blóm í haga og hjálpa ömmu að baka kleinur. Obama viðurkenndi að hafa reykt gras og djammað mikið á sínum menntaskólaárum.
Ekki gerði það hann að síðri forseta.
Kommonn krakkar… gerum betur árið 2024 en að synda áfram í drullupytti fordóma og fáfræði með spurningum sem eiga heima á Þjóðminjasafninu með símaskránni.
Og nú vitið þið hvern ég mun kjósa sem forseta.