Íslendingur hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir að hafa haldið erlendum ferðamanni í gíslingu á Hverfisgötu. Þetta staðfestir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýsingafulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Í gærmorgun var greint frá því að sérsveit ríkislögreglustjóra hefði verið kölluð út á Hverfisgötu vegna manns sem var sagður vopnaður skotvopni í íbúðarhúsnæði. RÚV greindi síðan frá því að maðurinn hefði haldið erlendum ferðamanni í gíslingu.
Gunnar Rúnar hafði ekki nánari upplýsingar um líðan ferðamannsins en sagðist ekki vera kunnugt um að hann væri á sjúkrahúsi. Málið er nú í rannsókn.
Umræða