Skjaldborgarhátíðin verður eins og vanalega á Patreksfirði núna um hvítasunnuhelgina og í ár verða frumsýndar 5 íslenskar heimildamyndir í fullri lengd og 8 íslenskar heimildastuttmyndir.
Þar að auki verða allskonar viðburðir og má þar sérstaklega nefna „Óséðar perlur frá Patró“ sem er haldin í samvinnu við Kvikmyndasafn Íslands. Að því er fram kemur á vef BB Bæjarins besta, fréttamiðli.
Garðar Ó. Jóhannesson (f. 1900 – d. 1970) var kominn af miklum atorkumönnum á Vatneyri við Patreksfjörð en faðir hans, Ólafur Jóhannesson, rak bæði verslun og útgerð á Vatneyri allt frá árinu 1914. Við fráfall Ólafs árið 1936 tóku synir hans Garðar og Friðþjófur við rekstri fyrirtækisins Ó. Jóhannesson.
Garðar Ó. Jóhannesson kvikmyndaði daglegt líf á Patreksfirði á árunum 1948 til 1953 og voru þetta miklir uppgangstímar þar sem m.a. var unnið við byggingu hafnarmannvirkja og nýir togarar komu til þorpsins. Filmur Garðars voru sennilega aldrei sýndar opinberlega svo nú gefst kostur á að kíkja inn um þennan einstaka glugga til fortíðar.
Ein af þeim heimildamyndum sem sýnd verða í fullri lengd er Bóndinn og verksmiðjan, en hún fjallar um bóndabæ í Hvalfirði þar sem hross veikjast eitt af öðru af völdum meintrar flúormengunar frá álverksmiðju í næsta nágrenni. Bóndinn á bænum mætir skilnings- og afskiptaleysi stjórnvalda og er sjálfur sagður bera ábyrgðina. Bóndinn leitar allra leiða til að komast að hinu sanna í málinu en á við ofurefli að etja.
Hinar myndirnar í fullri lengd eru svo Frá ómi til hljóms, Hashtag Túr, Paradís matörsins og Strengur.
