Helstu mál úr kerfum lögreglu milli 17:00 – 05:00 eru eftirfarandi:
Lögreglustöð 1 – Seltjarnarnes, Vesturbær, Miðbær og Austurbær
- Tveir aðilar handteknir, grunaðir um sölu og dreifingu fíkniefna. Meint fíkniefni haldlögð, skýrsla rituð um málið.
- Ökumaður stöðvaður eftir að hafa ekið gegn rauðu ljósi. Ökumaður neitaði fyrir brotið, skýrsla rituð.
- Aðili handtekinn þar sem hann sýndi af sér ógnandi hegðun, aðilinn á sögu um vopnaburð og ofbeldi og því var hann tryggður af lögreglu og færður í handjárn. Aðilinn sýndi mikla mótspyrnu og fór ekki eftir fyrirmælum. Aðilinn sefur nú í fangaklefa þar til hann verður yfirheyrður.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður og Garðabær
- Ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur þar sem mældur hraði reyndist vera 157 km/klst. þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hefðbundið sýnatökuferli, skýrsla rituð um brotin.
Lögreglustöð 3 – Kópavogur og Breiðholt
- Ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja. Ökumaðurinn reyndist sviptur ökurétti. Hefðbundið ferli.
Lögreglustöð 4 – Grafarvogur, Árbær og Mosfellsbær
- Tilkynnt er um fimm grímuklædda aðila sem brjóta útidyrahurð að heimili tilkynnanda rétt eftir miðnætti. Aðilarnir yfirgáfu vettvang á bifreið sem lögregla stöðvaði stuttu seinna. Allir farþegar í bifreiðinni handteknir og vistaðir í fangaklefa vegna gruns um þjófnað og húsbrot. Málið er í rannsókn.
- Ökumaður sektaður fyrir of hraðan akstur 81 km/klst. þar sem hámarkshraði er 50 km/klst. Ökumaður játar brot, afgreitt með vettvangsformi.
- Ökumaður handtekinn, grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíknefna og lyfja. Laus úr haldi lögreglu að sýnatöku lokinni.
Umræða