• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Erfiðleikar ekkju vegna mjólkursöluleyfis

Skæð fuglainflúensa á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Skæð fuglainflúensa greinist í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu

Fyrir skömmu bárust Matvælastofnun ábendingar um dauða fugla á höfuðborgarsvæðinu. Fannst annar fuglinn, rauðhöfðaönd, við Tjörnina í Reykjavík og hinn fuglinn, álft, við Ögurhvarf í Kópavogi. Sýni voru tekin og í þeim greindist skæð fuglainflúensa af gerðinni H5N1. Þetta staðfesti Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum í gær.

Sama afbrigði skæðrar fuglainflúensuveiru H5N1 greindist síðast í júlí 2023 í ritu. Eftir það hefur einungis hitt skæða afbrigði H5N5 fundist. Á þessu stigi málsins er lítið vitað um uppruna smits, en ætla má að það hafi nýlega borist til landsins með farfuglum eða að það hafi borist síðasta haust og verið óuppgötvað þar til nú. Erfðafræðilegar rannsóknir á veirunni munu fara fram og geta varpað ljósi á það hvort hún sé af evrópskum uppruna eða frá Norður-Ameríku. Lítið er vitað um útbreiðslu veirunnar að svo stöddu en engar vísbendingar eru um aukin afföll í villtum fuglum á suðvesturhorni landsins né annars staðar.

Afbrigðið H5N5, hefur greinst í stökum villtum fuglum víða um land síðasta haust, þó tilfellum hafi farið fækkandi og virðist það hafa fjarað út í nóvember 2025 eða að minnsta kosti ekki fundist eftir það. Hér á landi eru einnig dæmi um að spendýr, þá refir, minnkar og kettir, hafi veikst af þessu afbrigði veirunnar, en síðustu tilfelli voru staðfest í október 2025, þegar þrír refir greindust með fuglainflúensu af afbrigðinu H5N5.

Viðbúnaðarstig vegna fuglainflúensu hefur verið á óvissustigi síðan í haust og verður áfram í gildi óbreytt að svo stöddu.

Í ljósi þessa hefur Matvælastofnun sent út ábendingu til alifuglabænda, þar sem stofnunin leggur áherslu á hertar sóttvarnir til að koma í veg fyrir smiti í alifuglum frá villtum fuglum. Aðrir fuglaeigendur eru einnig hvattir til þess að tryggja öflugar smitvarnir við umgengni á sínum fuglahópum og vera vel vakandi fyrir sjúkdómseinkennum í fuglum eða óeðlilegum dauða í þeim og tilkynna án tafar slík tilfelli til stofnunarinnar.

Jafnframt hvetur Matvælastofnun almenning áfram til þess að tilkynna stofnuninni um veika og dauða fugla og villt spendýr sem það finnur. Það er gert með því að smella á „Ábendingar og fyrirspurnir“ á forsíðu www.mast.is. Mikilvægt er að lýsa staðsetningu fundarstaðarins vel, helst með hnitum, og láta mynd fylgja með. Almenna reglan er að hræ af villtum fugli er látið liggja. Ef hræ er aftur á móti þannig staðsett að það teljist æskilegt að fjarlægja, til dæmis nálægt hýbýlum fólks, þarf að gæta að einstaklings- og sóttvörnum og nota til verksins einnota hanska, hlífðargleraugu og veiruheldar grímur. Hræinu skal þá komið í tvöfaldan plastpoka og farga í almennt sorp, samkvæmt leiðbeiningum Matvælastofnunar.

Þau afbrigði af fuglainflúensuveirunni sem nú er mest um í Evrópu og víðar valda almennt ekki sýkingum í fólki. Á þetta við um bæði afbrigðin sem greinst hafa hérlendis síðan í haust (H5N5 og H5N1). Einstaka smit hafa komið upp erlendis, en þá hjá einstaklingum sem hafa verið í miklu návígi við sjúka fugla án þess að gæta sóttvarna. Líkurnar á smiti frá fuglum í fólk eru því mjög litlar en þó er aldrei hægt að útiloka smit og fólk þarf ávallt að gæta sóttvarna við handfjötlun á veikum og dauðum fuglum.

Frekari upplýsingar og aðrar leiðbeiningar má finna á upplýsingasíðu Matvælastofnunar um fuglainflúensu.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Níu handteknir vegna innflutnings á kókaíni

    Hand­tek­inn í aðgerð sér­sveit­ar og lög­reglu á Sel­fossi

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Reyna að sverta Flokk fólksins

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Gekk um nakinn í íbúðarhverfi

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    71 deilingar
    Share 28 Tweet 18
  • Alþingismanni hótað

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?