Foreldrar Sólons Guðmundssonar, flugmanns hjá Icelandair sem svipti sig lífi árið 2024, hafa höfðað mál á hendur flugfélaginu Icelandair. Fjallað er ítalega um málið á fréttavef mbl.is
Mikið var fjallað um mál Sólons í fjölmiðlum síðla árs 2024 en þá hafði fjölskylda Sólons lagt fram beiðni til lögreglu um að andlát hans yrði rannsakað. Sólon féll fyrir eigin hendi 25. ágúst 2024, aðeins 28 ára gamall en þá hafði hann starfað sem flugmaður hjá Icelandair í sex ár.
Málið byggt á kvörtunum þriggja kvenna sem kröfðust nafnleyndar
Samkvæmt upplýsingum frá foreldrum Sólons gengur málshöfðunin í meginatriðum út á að fá tvenn ummæli Icelandair dæmd ómerk.
„Ummælin snérust um að Sólon væri hættulegur öryggi starfsfólks Icelandair og voru ummælin byggð á kvörtunum þriggja kvenna sem kröfðust nafnleyndar. Sólon var þvingaður til að segja upp hjá Icelandair í kjölfarið og tók eigið líf þremur dögum seinna,“ segir í tilkynningu frá foreldrunum.
Þau telja brýnt að Icelandair geri hreint fyrir sínum dyrum og upplýsi hvað hafi legið að baki því mati félagsins að Sólon hefði verið hættulegur samstarfsfólki sínu. Að öðrum kosti telja þau ummælin ærumeiðandi og feli í sér aðför að æru og starfsheiðri sonar þeirra.
Fékk ekki að vita um nöfn eða ásakanir, þremur dögum fyrir andlátið
Þremur dögum fyrir andlátið var Sólon boðaður á fund með mannauðsdeild fyrirtækisins Icelandair, þar sem honum var tjáð um ásakanir samstarfskvenna á hendur honum án þess að fá að vita í hverju þær fælust.
Var honum gert að segja upp störfum sínum í kjölfarið. Þremur dögum eftir andlátið var Sólon kærður til lögreglu fyrir kynferðisbrot. Sólon hafði sjálfur kvartað til Icelandair í aprílmánuði sama ár vegna eineltis sem hann sagðist hafa orðið fyrir af hálfu tveggja samstarfskvenna.
Fjallað er ítalega um málið á fréttavef mbl.is
Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

