• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kjarasamningur undirritaður

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Efling og samflotsfélögin VR, LÍV, Framsýn, VLFA og VLFG hafa undirritað kjarasamning við Samtök atvinnulífsins með fyrirvara um aðkomu ríkisvaldsins. Einnig undirrituðu aðildarfélög SGS sams konar samning. Samningurinn mun mynda hluta af víðtækri sátt um bætt kjör láglaunafólks þar sem aðilar vinnumarkaðarins, ríkisvaldið og Seðlabankinn leggja sitt af mörkum.
Þessi víðtæka samvinna stofnana samfélagsins um að bæta kjör láglaunafólks er beinn árangur af baráttu Eflingar og samflotsfélaga.
Samninganefnd Eflingar veitti formanni umboð á þriðjudagskvöld til að ljúka við kjarasamninginn sem undirritaður var í kvöld.
Leiða má líkum að því að enginn kjarasamningur á Íslandi hvorki fyrr né síðar hafi tryggt jafn vel að kjarabætur beinist sérstaklega að lágtekjufólki. Allar launahækkanir samningsins til félagsmanna samflotsfélaganna eru krónutöluhækkanir og við þær bætast sérstakar krónutöluhækkanir á taxta.
Efling er stolt af þátttöku sinni í breiðri samstöðu með VR og Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna um krónutöluhækkanir og sérstakar hækkanir á taxta. Þessi styrka samstaða mun í framhaldinu gefa tóninn fyrir launastefnu gagnvart öðrum hópum bæði á almennum og opinberum markaði. Efling er einnig stolt af að hafa tryggt að sá ábati verði ekki tekinn til baka í gegnum skattkerfið, líkt og gerðist á samningstíma síðasta kjarasamnings.
Hreinar launahækkanir til þeirra sem starfa á töxtum nema 90 þúsund krónum í fjórum hækkunum yfir samningstímann, sem er til 3 ára og 8 mánaða. Þessi hækkun er rúmlega fjórðungi lægri en krafa Eflingar og annarra SGS félaga um 125 þúsund króna hækkun á þremur árum. Lág hækkun árið 2019 dregur helst niður heildarhækkunina. Með þessu er tekið tillit til stöðu atvinnulífsins vegna gjaldþrota og uppsagna í ferðaþjónustu auk þess sem sköpuð eru skilyrði til vaxtalækkunar.
Til viðbótar hefðbundnum nafnlaunahækkunum koma til ýmis atriði sem munu auka ráðstöfunartekjur og eru þannig ígildi launahækkana.
Í samningnum er nýstárlegt ákvæði sem tryggir að hagvaxtaraukning skili sér til launafólks í formi krónutöluhækkana. Að því gefnu að hagvöxtur á mann aukist um tiltekið hlutfall munu koma til sjálfkrafa hækkanir til viðbótar hefðbundnum umsömdum launahækkunum. Líkt og aðrar krónutöluhækkanir í samningnum er þessi hagvaxtartengdi launaauki útfærður þannig að hann skilar sér betur til þeirra sem vinna á töxtum. Miðað við meðalhagvöxt síðustu 30 ára gæti slíkur ábati skilað 10-24 þúsund til viðbótar við heildarhækkun launa á samningstímanum.
Ein af forsendum samningsins er að Seðlabanki Íslands lækki stýrivexti. Samningsaðilar eru sammála um að samningurinn skapi aðstæður til þess. Lækkun vaxta mun hafa mikil áhrif á útgjöld skuldsettra heimila og einnig stuðla að lækkun leiguverðs. Í samningnum verða forsenduákvæði um uppsögn hans verði vaxtalækkanir ekki að raunveruleika.
Samhliða undirritun samnings mun ríkisvaldið skuldbinda sig til að lækka skatta þannig að það skili sér í 10 þúsund króna aukningu ráðstöfunartekna á mánuði til handa tekjulægstu hópum í skrefum. Tryggt verður að hækkuð skattleysismörk haldi raungildi sínu út samningstímann. Hækkun skerðingarmarka barnabóta, til viðbótar við hækkun barnabóta sem þegar var kynnt í fjárlögum síðasta árs, mun einnig skila sér vel til tekjulágra.
Aðgerðir ríkisins í húsnæðismálum koma til með að fela í sér aukið fjármagn til byggingar íbúðarhúsnæðis fyrir tekjulága og lagasetningu sem hamlar óhóflegum hækkunum húsaleigu.
Að auki mun ríkið skuldbinda sig til kerfisbreytinga varðandi lánakjör og fjármálakerfið, sérstaklega til skrefa til afnáms verðtryggingar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stórbruni í Hafnarfirði

    Stórbruni í Hafnarfirði

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Davíð Oddsson er látinn

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Tugi milljarða til Íran frá Íslandi

    78 deilingar
    Share 31 Tweet 20
  • Einfaldara og fljótlegra að uppfæra ökuskírteini

    78 deilingar
    Share 31 Tweet 20
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?