• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kristján Þór stöðvaði grásleppuveiðar fyrirvaralaust og vill kvótasetja hana

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. maí 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra talar frá Dalvík – kvöldfréttir Stöðvar tvö í kvöld – skjáskot

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra sagði í kvöldfréttum Stöðvar tvö í kvöld sem náði sambandi við hann, þar sem hann var staddur á Dalvík að hann vilji að grásleppa verði sett í kvóta. Sjómenn eru æfir yfir því að hann hafi stöðvað grásleppuveiðar fyrirvaralaust og sjómenn hafa í dag, sunnudag verið að ná í veiðarfæri sín, þ.e.a.s  þeir sem náðu að hefja veiðar. Gríðarlegt tjón er vegna þessarar stöðvunar hjá þeim sem hafa kostað mikið til í veiðarfæri ofl. og ætluðu með báta sína á veiðar en þeim er nú fyrirvaralaust bannað að nýta fjárfestinguna til 2021.
Smábátaeigendur víða um land hafa mótmælt aðgerðinni og hafa sumir sagt að þessi fyrirvaralausa aðgerð sé til að þvinga smábátasjómenn inn í framsals- og kvótabraskskerfið með grásleppu líkt og tíðkast með aðrar fisktegundir á Íslandi. Þá hafa strandveiðimenn krafist þess að vera með frjálsar strandveiðar og utan kvóta undanfarnar vikur og hafa þau mótmæli ekki farið framhjá neinum.
„Þetta er illskiljanlegt því að það er alltof lítill fyrirfari. Veiðar ganga vel. Virðist vera nóg að grásleppu. Svo ber hann við að þetta sé gert því  þessu marki sé náð burtséð frá því að sumir eru búnir að veiða mikið, aðrir eru rétt byrjaðir og það getur hver maður séð hvað það felst mikil mismunun felst í þessu.  Ég velti fyrir mér hvort að aðgerðin sé af því ráðherrann vill setja kvóta á tegundina,“ sagði Rögnvaldur Einarsson skipstjóri á VER AK 38 á Akranesi í samtali við Stöð tvö sem hefur fylgst vel með málinu.
Kristján Þór Júlíusson sagði enga launung á því að hann vilji setja kvóta á tegundina í viðtalinu við Stöð tvö.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    56 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Alþingismanni hótað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?