• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Lögreglustöðin við Hverfisgötu

Vændiskaup til rannsóknar hjá Lögreglu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. júlí 2019
in Fréttir, Innlent, Óflokkað
A A
0

 
Undanfarið hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagt aukinn kraft í rannsóknir mála er snúa að skipulagðri brotastarfsemi, en mansal og vændi eru ein birtingarmynd þess.
Í nýrri samantekt embættisins, afbrotatölfræði fyrir maí, mátti lesa um mikla fjölgun kynferðisbrota í umdæminu í maí, en ástæður þessa má rekja til áherslna lögreglunnar er taka til vændismála.
Kynferðisbrotin (kaup á vændi – 206. gr. alm. hegningarlaga) voru 17 í fyrrnefndum mánuði og enn fleiri í síðasta mánuði, júní, eða 21. Allt árið í fyrra voru brotin 9, en þetta árið hefur embættið haft meiri mannafla og tíma til að takast á við málaflokkinn og tölurnar endurspegla það. Þess má jafnframt geta að vændismálin eru samtals 48 það sem af er árinu 2019.
Athygli vekur að 94% þeirra sem voru staðnir að verki við vændiskaup eru íslenskir karlmenn, en meðalaldur þeirra er 41 ár. Hinir, 6%, voru erlendir karlmenn, en þetta hlutfall kann að koma einhverjum á óvart.
Þeir sem stunda vændi hérlendis eru mestmegnis erlendar konur, en sumar þeirra virðast koma hingað ítrekað þessara erinda. Mansalsmál eru sömuleiðis til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en þau eru þung í vöfum og taka langan tíma. Hér, líkt og á Norðurlöndunum, eru fá mál sem fara alla leið í kerfinu, en það kann að breytast þegar fram líða stundir.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    215 deilingar
    Share 86 Tweet 54
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?