Nýlega úrskurðaði matvælaráðuneytið að bónda á Norðurlandi vestra væri skylt að afhenda Matvælastofnun ákveðinn hrút til að kanna útbreiðslu á riðuveiki.
Fyrir lá að hann hafði haft samgang við riðuveika kind og gæti því hugsanlega verið smitberi. Eftir að riðutilfelli greindist í Miðfjarðarhólfi vorið 2023 fór fram smitrakning sem leiddi þetta í ljós.
Eina leiðin til að finna út úr því væri krufning og athugun á heilavef hrútsins. Þess vegna krafðist Matvælastofnun afhendingar hans.
Umræða