Hörmungar sem leiddar eru yfir almenning eru birtingamynd óstjórnar – spillingarmál og fleira
Það hálf hjákotlegt að hlýða á málflutning Sigurðar Inga fyrrum innviða- og núverandi fjármálaráðherra, gera því skóna að óánægja með ríkisstjórn Íslands snúist fyrst og fremst um alþjóðlega þróun vegna þrenginga í efnahagsmálum í kjölfar stríðsins í Úkraínu.
Það stenst auðvitað enga skoðun þar sem íslensk stjórnvöld eiga Evrópumet í vaxtaokri ef frá er talið Rússland. Það sem meira er, vaxtaokrinu er velt af fullum þunga á neytendur á meðan lánastofnanir baða sig í gulli.
Þessar hörmungar sem leiddar eru yfir almenning eru birtingamynd óstjórnar, þar sem ytri aðstæður eru að mörgu leyti góðar fyrir þjóðarbúið, allur fiskur sem má veiða er seldur háu verði, gott verð er fyrir rafmagn til stóriðju og enn streyma ferðamenn í miklum mæli til landsins þó eitthvað hafi dregið þar úr.
Miklu nær væri fyrir Sigurð Inga að líta sér nær t.d. til vaxtaokursins, öngþveitisins og hættu sem hann hefur sjálfur búið til á leigubílamarkaði, algerrar óstjórnar í húsnæðismálum og hælisleiteindamálum sem kristallast í máli M.Th.Jóhannessonar.
Jú og svo má ekki gleyma augljósum spillingarmálum þegar vinir verða sendiherrar og allt vegafé lendir fyrir undarlegar tilviljun í kjördæmi fjármálaráðherra. Fleiri furður má nefna t.d. þegar megnið af byggðakvótum sem hugsaðir eru m.a. til að draga úr neikvæðum áhrifum samþjöppunar fara til þeirra útgerða sem stunda það að kaupa upp veiðiheimildir.
Síðasta afrek ríkisstjórnarinnar, var að færa veiðiheimildir frá nokkrum trillum m.a. á Hofsósi til stórfyrirtækisins FISK-Seafood eða KS.
Það er augljóst hverjir eiga skjól hjá ríkisstjórn Bjarna Ben og hverjir eigi að éta það sem úti frýs.