• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Skattbreytingar á árinu 2021

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. janúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

Um áramót taka gildi ýmsar skattabreytingar er snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Áhrif þeirra eru metin til samtals 18 ma.kr. lækkunar á tekjum ríkissjóðs. Auk þess nema tímabundnir skattastyrkir í VSK til stuðnings vistvænum samgöngum og framkvæmdum við íbúðarhúsnæði o.fl. alls 13 ma.kr. á árinu. Hér verður fjallað um helstu efnisatriði breytinganna en nánari upplýsingar um einstakar breytingar má finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa og öðrum skjölum málanna á vef Alþingis.

Tekjuskattur einstaklinga

Um áramótin mun síðari áfangi breytinga á tekjuskatti einstaklinga taka gildi. Þessi seinni áfangi felur í sér lækkun á grunnþrepi tekjuskatts um 3,60 prósentustig og hækkun á miðþrepi tekjuskatts um 0,75 prósentustig. Nýju skattprósenturnar verða því 17% í grunnþrepi og 23,5% í miðþrepi. Við prósenturnar bætist síðan útsvarsprósenta sveitarfélaga.

2020 2021
Prósenta í grunnþrepi 35,04% 31,45%
Prósenta í miðþrepi 37,19% 37,95%
Prósenta í háþrepi 46,24% 46,25%
Á ári Á mánuði Á ári Á mánuði
Þrepamörk upp í miðþrep 4.042.995 336.916 4.188.211 349.018
Þrepamörk upp í háþrep 11.350.472 945.873 11.758.159 979.847
Persónuafsláttur 655.538 54.628 609.509 50.822
Skattleysismörk tekjuskattsstofns 1.870.828 155.902 1.938.024 161.501
Skattleysismörk launa* 1.948.779 162.398 2.018.775 168.230

* að teknu tilliti til lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð

  • Tengill á gögn málsins á vef Alþingis

Barnabætur

Um áramótin hækka neðri skerðingarmörk tekjustofns barnabóta. Skerðingarmörkin hjá einstæðum foreldrum hækka úr 3,9 m.kr. á ársgrundvelli í 4,2 m.kr., eða úr 325 þúsund kr. á mánuði í 351 þúsund kr. á mánuði. Það þýðir að fyrir einstætt foreldri sem hefur allar sínar tekjur af launavinnu og greiðir 4% skylduiðgjald í lífeyrissjóð er engin skerðing á barnabótum upp að 365.040 kr. í mánaðarlaun.

Hjá sambúðaraðilum munu neðri skerðingarmörkin hækka úr 7,8 m.kr. á ársgrundvelli í 8,4 m.kr., eða úr 650 þúsund kr. á mánuði í 702 þúsund kr. Það þýðir að fyrir sambúðaraðila sem hafa allar sínar tekjur af launavinnu og greiða 4% skylduiðgjald í lífeyrissjóð er engin skerðing á barnabótum upp að 730.080 kr. í samanlögð mánaðarlaun.

Efri skerðingarmörk haldast óbreytt við 5,5 m.kr. hjá einstæðum foreldrum og 11,0 m.kr. hjá sambúðarfólki. Í eftirfarandi töflu eru tekin dæmi af fjölskyldum með misháar tekjur og áhrifum barnabótabreytinga á ráðstöfunartekjur þeirra.

Barnabætur með tveimur börnum,
öðru yngra en 7 ára
2020 2021 Breyting
kr. kr. kr. %
Einstætt foreldri með 4,2 m.kr. í skattstofn á ári 901.500 931.500 30.000 3,3%
Einstætt foreldri með 5,5 m.kr. í skattstofn á ári 771.500 802.700 31.200 4,0%
Einstætt foreldri með 9 m.kr. í árstekjur 433.000 451.720 18.720 4,3%
Hjón með 8,4 m.kr. í skattstofn á ári 593.700 653.700 60.000 10,1%
Hjón með 9 m.kr. í árstekjur 533.700 596.100 62.400 11,7%
Hjón með 12 m.kr. í árstekjur 246.700 284.140 37.440 15,2%
  • Tengill á gögn málsins á vef Alþingis

Tryggingagjald

Í ársbyrjun 2021 mun skatthlutfall almenns tryggingagjalds lækka um 0,25 prósentustig, úr 4,9% í 4,65%. Er sú aðgerð tímabundin í eitt ár og hluti af aðgerðarpakka stjórnvalda vegna efnahagsáhrifa kórónaveirunnar.

Tryggingagjald í heild lækkar úr 6,35% í 6,10%, sbr. meðfylgjandi töflu.

Tryggingagjald 2020 2021
Almennt tryggingagjald 4,90% 4,65%
Atvinnutryggingagjald 1,35% 1,35%
Gjald í Ábyrgðarsjóð launa vegna gjaldþrota 0,05% 0,05%
Markaðsgjald 0,05% 0,05%
Tryggingagjald, samtals 6,35% 6,10%
  • Tengill á gögn málsins á vef Alþingis

 

Fjármagnstekjuskattur

Þrenns konar breytingar á fjármagnstekjuskatti einstaklinga taka gildi í byrjun árs 2021. Frítekjumark er tvöfaldað og verða því fjármagnstekjur allt að 300 þús.kr. skattfrjálsar árið 2021, í stað 150 þús.kr. árið áður. Auk þess er sú breyting gerð að frítekjumarkið nær nú einnig til úthlutaðs arðs og söluhagnaðar hlutabréfa í félögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði eða markaðstorgi fjármálagerninga. Þá er brugðist við misræmi í skattlagningu söluhagnaðar húsnæðis í eigu einstaklinga með því að fella söluhagnað af frístundahúsnæði til eigin nota undir sömu reglur og gilda um íbúðarhúsnæði en þó með kröfu um 7 ára lágmarks eignarhaldstíma.

Fjármagnstekjuskattur 2020 2021
Skatthlutfall 22% 22%
Frítekjumark einstaklinga 150.000 300.000
  • Tengill á gögn málsins á vef Alþingis

Erfðafjárskattur

Skattfrelsismark erfðafjárskatts hækkar úr 1,5 m.kr. í 5 m.kr. í ársbyrjun 2021 og mun framvegis taka árlegri breytingu miðað við þróun vísitölu neysluverðs. Skatthlutfallið helst óbreytt frá fyrra ári.

Erfðafjárskattur 2020 2021
Skatthlutfall 10% 10%
Skattfrelsismark 1,5 m.kr. 5 m.kr.
  • Tengill á gögn málsins á vef Alþingis

Framlenging heimilda til frestunar staðgreiðslu opinberra gjalda

Launagreiðendur geta sótt um frestun á allt að tveimur greiðslum vegna afdreginnar staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds af launum á árinu 2021. Nýr gjalddagi og eindagi þeirra greiðslna verður 15. janúar 2022.

  • Tengill á gögn málsins á vef Alþingis

Krónutölugjöld á eldsneyti, áfengi, tóbak o.fl.

Krónutölugjöld lækka að raungildi um næstu áramót en þau munu einungis hækka um 2,5% sem er minna en nemur verðbólgu frá síðustu verðlagsuppfærslu. Breytingar á helstu krónutölugjöldum milli áranna 2020 og 2021 eru sýndar í meðfylgjandi töflu.

 

Helstu krónutölugjöld 2020 2021
Bensín- og olíugjöld (kr./ltr.)
Almennt vörugjald á bensín 28,75 29,45
Sérstakt vörugjald á bensín 46,35 47,50
Olíugjald 64,40 66,00
Kolefnisgjald
Gas- og dísilolía (kr./ltr.) 11,45 11,75
Bensín (kr./ltr.) 10,00 10,25
Brennsluolía (kr./kg) 14,10 14,45
Jarðolíugas (kr./kg) 12,55 12,85
Bifreiðagjald (kr.)*
Grunngjald bifreið < 3.500 kg. 6.225/150 6.380/154
Grunngjald bifreið > 3.500 kg. 58.325/2,49/91.800 59.785/2,55/94.095
Kílómetragjald (kr./km.)
Kílómetragjald (allir gjaldflokkar hækka um 2,5%)
Áfengisgjald (kr./cl.)
Bjór 125,65 128,80
Léttvín 114,45 117,30
Sterkt vín 154,90 158,75
Tóbaksgjald
Vindlingar (kr./pk.) 515,95 528,85
Neftóbak (kr./gr.) 28,70 29,40
Annað (kr./gr.) 28,70 29,40
*Sýnt er grunngjald á hvert ökutæki, einingagjald á hvert gr. umfram 121 gr. CO2og hámarksgrunngjald. Hér er miðað við skráða losun skv. evrópsku aksturslotunni.
  • Tengill á gögn málsins á vef Alþingis

Virðisaukaskattur

Um síðustu áramót tóku gildi fjölbreyttir skattastyrkir sem hvetja til notkunar á vistvænum samgöngum. Var ýmist um að ræða framlengingu og aukningu á eldri úrræðum eða nýjar tegundir stuðnings. Þar má nefna niðurfellingu VSK í heild eða að hluta fyrir vistvæna bíla, bifhjól, reiðhjól og hlaupahjól; endurgreiðslu VSK af hleðslustöðvum; og loks stuðning við rekstraraðila sem fjárfesta í vistvænum ökutækjum, í formi fullrar fyrningar á kaupári fyrir hreinorkubíla og niðurfellds VSK við kaup á hópferðabílum og af útleigu bílaleigubíla. Þessir skattastyrkir gilda almennt út árið 2023 en þó aðeins út árið 2022 fyrir tengiltvinnbíla. Sjá má yfirlit um þessa skattastyrki í frétt hér á vefnum 30. desember 2019.

Í tilviki tengiltvinnbíla er framangreindur skattastyrkur felldur niður í skrefum á næstu árum. Sú breyting var þó gerð nú í desember að hámarks ívilnun á árinu 2021 verður óbreytt, 960 þús.kr., í stað þess að lækka í 600 þús.kr. eins og áður hafði verið lögfest. Um leið var gerð sú breyting á skilyrðum ívilnunarinnar að hámark heimilaðrar skráðrar losunar var lækkað um 10 gr.

  • Tengill á gögn málsins á vef Alþingis (stuðningur við vistvæn ökutæki o.fl.).
  • Tengill á gögn málsins á vef Alþingis (breyting á ívilnun fyrir tengiltvinnbíla 2021)

Auknar endurgreiðslur VSK vegna kórónuveirufaraldursins munu gilda út árið 2021 samkvæmt ákvörðun Alþingis fyrir jól. Þær felast annars vegar í hækkuðu endurgreiðsluhlutfalli vegna vinnu við íbúðarhúsnæði úr 60% í 100% og hins vegar í útvíkkun til ýmissa tegunda starfsemi og framkvæmda sem allajafna njóta ekki endurgreiðslu VSK (sjá töflu).

Tegund framkvæmda Endurgreiðsla VSK af vinnulið 2021
Íbúðarhúsnæði: nýbyggingar og viðhald  100% endurgreiðsla (hækkun úr 60%)
Íbúðarhúsnæði: hönnun og eftirlit  100% endurgreiðsla
Íbúðarhúsnæði: frístundahúsnæði  100% endurgreiðsla
Heimilishjálp og regluleg umhirða heimila  100% endurgreiðsla
Bifreiðaviðgerðir einstaklinga  100% endurgreiðsla
Annað húsnæði sveitarfélaga  100% endurgreiðsla
Húsnæði almannaheillafélaga  100% endurgreiðsla
  • Tengill á gögn málsins á vef Alþingis
Umræða
Share31Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?