• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 19. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sæstrengur í stað íbúða?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. febrúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Um 7.000 manns búa nú þegar í óleyfisíbúðum

Í úttekt Viðskiptaráðs er farið yfir mikilvægi þess að lífeyrissjóðir komi að innviðafjárfestingum. Bent er á lönd eins og Kanada og Ástralíu í þeim efnum. Af öllu sem upp er talið meðal fjárfestingakosta fyrir lífeyrissjóði er ekki einu orði minnst á íbúðarhúsnæði. Eða þá staðreynd að innviðafjárfesting í íbúðarhúsnæði og húsnæðisfélögum er regla frekar en undantekning hjá lífeyrissjóðum í Evrópu, sérstaklega í þeim löndum sem við berum okkur einna helst saman við.

Er það meðvitað gert að undanskilja einn mikilvægasta innviðinn í þessari úttekt? Úttekt sem telur upp sæstreng og raflínur?
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR skrifar um þjóðmál

Fyrir liggur að í uppsiglingu er mjög alvarlegur húsnæðisskortur með öllum þeim ömurlegu samfélagslegu áhrifum sem það hefur í för með sér.

En rétt er að geta þess að um 7.000 manns búa nú þegar í óleyfisíbúðum, eða óviðunnandi húsnæði.

Það er ljóst að í uppsiglingu er mikill þrýstingur á að lífeyrissjóðir fjármagni gríðarlega áhættusamar framkvæmdir. Framkvæmdir eins og sæstreng sem gefur hagsmunahópum sem fjárfest hafa í jörðum með virkjanaleyfum tækifæri til að tengjast inn á risastóran raforkumarkað.

Það er þá gott að láta lífeyrissjóði almennings taka þá miklu áhættu að fjármagna sæstreng og raflínukerfið sem þarf til. En fyrir Viðskiptaráð er húsnæðisskortur líklega hið besta mál. Þannig heldur húsnæðisverð áfram að hækka og fjárfestar græða, leiga hækkar, og fjármálastofnanir tryggja veðrétt.

Það er ljóst að fólkið í landinu þarf að taka til sinna ráða og krefjast þess að sjóðfélagar/eigendur kjósi stjórnir lífeyrissjóða í stað atvinnulífsins.

Það hlýtur að verða stóra krafan í komandi Alþingiskosningum.

Umræða
Share73Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Uppbygging hjúkrunarheimila: Sátt milli ríkis og sveitarfélaga fest í lög

    Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Viðvörun vegna veðurs

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • ESB neyðir Svíþjóð til að loka vatnsorkuverum

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Lögreglan leitar manns

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Af hverju í ósköpunum ættum við að rukka þig fyrir að nota peningana þína?“

    447 deilingar
    Share 179 Tweet 112
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?