Gæsluvarðhaldið yfir manninum var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur framlengt um fjórar vikur, eða til 3. mars, á grundvelli almannahagsmuna.
Karlmaður á fimmtugsaldri var þann 8. janúar s.l. í Héraðsdómi Reykjavíkur, úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 4. febrúar, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í húsi á Kjalarnesi á nýársnótt.
Tveir slösuðust alvarlega í árásinni þar sem hnífi var beitt og hlaut annar þeirra lífshættulega áverka. Maðurinn, sem nú hefur verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, var handtekinn á vettvangi.
Rannsókn málsins miðar vel.
Umræða