• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

91% telja bankana ekki þjóna almenningi heldur stórfyrirtækjunum

Bankarnir virða hvorki lög, mannréttindi né samfélagslega ábyrgð

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. febrúar 2026
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Samfélagsósómi bankanna

Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar
Íslenskir bankar hafa á undanförnum misserum lokað bankareikningum fólks sem hefur lokið afplánun dóms, ekki brotið af sér á ný og er að reyna að byggja upp eðlilegt líf. Að mati Afstöðu-réttindafélags er um að ræða samfélagslega útilokun en bankareikningur er forsenda þess að fá útgreidd laun, fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera og til þess að greiða reikninga. Þetta er með öðrum orðum gríðarlega stór hindrun á viðkvæmum tíma og ekki til þess fallið að stuðla að farsælli endurkomu í samfélagið.

Afstaða hefur þurft að aðstoða fyrrverandi fanga sem voru umkomulausir eftir að bankareikningum þeirra var lokað. Í samskiptum við bankana vísa starfsmenn þeirra oftar en ekki til laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka en þau lög réttlæta ekki að bankar taki sér stöðu dómara og refsi fólki án dóms eða raunverulegs gruns um brot. Bankar eru ekki löggæslustofnanir og ef grunur vaknar um brot eiga þeir að tilkynna það til lögreglu en ekki loka reikningum fólks fyrirvaralaust.

Í þessum málum er augljóst að bankarnir fara í manngreinarálit en með því brjóta þeir gegn lögum nr. 5/2023 um greiðslureikninga. Samkvæmt lögunum er bönkunum skylt að veita neytendum aðgengi að almennum greiðslureikningi og er þeim óheimilt að mismuna neytendum að því leyti. Þá segir berum orðum: „Lánastofnanir skulu þó ekki nota ákvæði laga þar um, t.d. um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sem átyllu til að hafna neytendum sem þær telja síður álitlega viðskiptavini með tilliti til fjárhagsstöðu þeirra.”

Afstaða skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að bankarnir virði lög landsins og tryggi öllum viðskiptavinum sínum aðgengi að bankareikningi. Verði ekkert gert og bankarnir fá óareittir að hafna þeim sem þeir telja óæskilega viðskiptavini eru afleiðingarnar augljósar. Fólki er ýtt út á jaðarinn, í vítahring skuldavanda og svarta hagkerfið stækkar. Samfélagið allt tapar á þessari stefnu bankanna sem virða hvorki lög né mannréttindi og virða samfélagslega ábyrgð að vettugi.

Höfundur er formaður Afstöðu-réttindafélags

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    Heimilt að segja upp starfmanni án áminningar

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Hvessir og frost 5 til 15 stig

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Ný reglugerð um strandveiðar hefur tekið gildi

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kona handtekin fyrir líkamsárás

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Líkamsárásir, fíkniefni, eignaspjöll, hótanir og vopnalagabrot

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?