Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist tilkynningar um svikasímtöl hvar notast er við gervigreind. Hringt er úr leyninúmeri og rödd sem búin er til af gervigreind kynnir sig sem Sigríði Björk. Gervigreindin segist vera að hringja vegna alvarlegs afbrots og spurt er hvort viðkomandi hafi þegar greitt sekt vegna málsins.
Lögregla vill ítreka að umrædd símtöl eru svikasímtöl. Þau eru hvorki frá Sigríði Björk né lögreglunni. Lögreglan innheimtir ekki sektir í gegnum síma.
Það er góð regla að gefa aldrei upp kortanúmer í gegnum síma og heimila ekki rafræna auðkenningu nema þú sért sjálf/ur/t að verki.
Ef fólk telur sig hafa orðið fyrir svikum vegna þessa og telur sig hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa strax samband við sinn viðskiptabanka og fá þar ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu.
Umræða

