• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 22. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Vextir lækka ekki

Vextir lækka ekki

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. febrúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 7,25%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Verðbólga mælist nú 5,2% og hefur aukist á ný. Þótt hækkun verðlags í janúar megi að miklu leyti rekja til breyttrar gjaldtöku hins opinbera af nýjum bifreiðum eru verðhækkanir á tiltölulega breiðum grunni. Undirliggjandi verðbólguþrýstingur er því áfram þrálátur þótt hægt hafi á efnahagsumsvifum og skýr merki séu um kólnun á vinnumarkaði.

Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er spennan í þjóðarbúinu horfin, útlit fyrir tiltölulega hægan hagvöxt og að verðbólga hjaðni þegar líður á árið. Þrátt fyrir tímabundna aukningu verðbólgu í byrjun árs hafa verðbólguhorfur til lengri tíma lítið breyst. Óvissa er þó mikil enda launahækkanir enn töluverðar og verðbólguvæntingar mælast áfram yfir markmiði.

Af þessum sökum telur peningastefnunefnd rétt að halda vöxtum bankans óbreyttum. Frekari ákvarðanir um lækkun vaxta bankans eru háðar því að skýrar vísbendingar komi fram um að verðbólga sé að hjaðna í 2½% markmið bankans.

Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Verð á eldsneyti lækkar

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Veðurviðvörun á Tenerife, stormur og snjór – vinsælum ferðamannastað lokað

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Grunur um brot gegn barni á leikskóla í Garðabæ og í fleiri leikskólum

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Lágt verð á krónu er stærsta kjaraskerðingin

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?