Fréttatilkynning frá Vísindaráði almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra – Ennþá merki um að kvikugangur sé að myndast á svæðinu milli Fagradalsfjalls og Keilis
Vísindaráð almannavarna fundaði á fjarfundi í dag til að ræða jarðskjálftahrinuna á Reykjanesskaga. Fundinn sátu fulltrúar frá Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands, Umhverfisstofnun, Isavia-ANS, HS-Orku og ÍSOR.
Á fundinum var farið yfir mælingar og gögn sem hafa borist síðasta sólarhringinn. Mat vísindamanna er að nýjustu gögn gefi ekki vísbendingar um að gos sé yfirvofandi á næstu klukkustundum. Jarðskjálftamælingar sýna að virknin er ennþá mikil á svæðinu, þó dregið hafi úr henni eftir óróapúlsinn sem mældist í gær. Skjálftavirknin hefur verið að færast örlítið í suðvestur, en ennþá er megin virknin á þeim slóðum sem hún hefur verið að undanförnu.
Einnig var farið yfir nýjar InSAR gervihnattamyndir sem bárust í dag. Þær myndir spanna tímabilið frá 25. febrúar til 3. mars (kl.18:59) og sýna ennþá merki um að kvikugangur sé að myndast á svæðinu milli Fagradalsfjalls og Keilis. Það styðja einnig GPS mælingar, sem sýna áfram nokkuð stöðuga hreyfingu, sem þó virðist hafa hægt á sér miðað við síðustu daga. GPS mælingarnar, ásamt InSAR gögnum, sýna því að ekki varð veruleg aukning í kvikurhreyfingum samfara jarðskjálftavirkninni 3. mars. Sérfræðingar munu túlka frekar aflögunargögn til að átta sig á hversu miklar breytingar hafa átt sér stað og hvað þær þýða um framvindu mála.
Niðurstaða vísindaráðs er sú að nýjustu mælingar og gögn sýni að þau merki sem komu fram í gær um að veruleg hætta væri á gos gæti hafist á næstu klukkustundum hafi dofnað mjög. Jarðskjálftavirkni og aflögun heldur eigi að síður áfram. Því hefur þessi atburðarás ekki áhrif á þær sviðsmyndir sem unnið hefur verið eftir, að gera verði ráð fyrir að gos geti brotist út ásamt líklegustu staðsetningu og mögulegu umfangi goss.
Gera verður ráð fyrir að framvinda á Reykjanesskaga muni verða kaflaskipt næstu daga og aftur geta komið skyndilegir púlsar með þéttum smáskjálftum (óróapúlsar), sambærilegir þeim sem mældust í gær. Dæmi um slíka kaflaskipta virkni, þar sem kvika kemst á hreyfingu og framkallar púlsa með tíðum smáskjálftum, eru Kröflueldar 1975-1984. Þar einkenndist virknin af talsverðri skjálftavirkni og kvikuhreyfingum samfara púlsum með smáskjálftavirkni. Í sumum tilfellum urðu eldgos, í öðrum ekki.
Það er mat vísindaráðs að nauðsynlegt sé að taka óróapúlsa, sambærilegum þeim sem varð í gær, alvarlega og reikna með þeim möguleika að gos kunni að vera yfirvofandi þegar þeir mælast.
Vísindaráð mun hittast aftur á morgun til að ræða nýjustu gögn og mælingar.
Mynd tekin af vef Veðurstofu Íslands
Discussion about this post