• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. maí 2018
in Óflokkað
A A
0
Fulltrúar úr starfshópnum ásamt heilbrigðisráðherra í velferðarráðuneytinu - myndVelferðarráðuneytið
Fulltrúar úr starfshópnum ásamt heilbrigðisráðherra í velferðarráðuneytinu
Starfshópur sem unnið hefur tillögur að aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi kynnti heilbrigðisráðherra niðurstöður sínar á fundi í velferðarráðuneytinu í gær. Embætti landlæknis var falið í september sl. að skipa starfshópinn á grundvelli þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára.Starfshópurinn hafði það hlutverk að fara yfir gagnreyndar aðferðir til að fækka sjálfsvígum og sjálfsvígstilraunum ungmenna og velja leiðir til að innleiða hérlendis.
Tíðni sjálfsvíga hér á landi er lægst meðal unglinga en annars svipuð yfir öll fullorðinsárin og því beindi starfshópurinn sjónum að æviskeiðinu í heild. Það er m.a. mat hópsins að mikilvægt sé að komið verði á fót föstum vettvangi fyrir uppbyggingu þekkingar og þróunar úrræða og að nýta beri þá umfangsmiklu þverfaglegu og þverstofnanalegu vinnu sem hefur þegar farið fram hér á landi á undanförnum árum og áratugum við að efla geðheilsu og geðheilbrigðisþjónustu.
Aðgerðaáætlun starfshópsins er viðamikil og snúa tillögur hans til stjórnvalda um aðgerðir að eftirfarandi þáttum:

  1. Eflingu geðheilsu og seiglu í samfélaginu,
  2. Gæðaþjónustu á sviði geðheilbrigðismála,
  3. Takmörkun á aðgengi að hættulegum efnum, hlutum og aðstæðum,
  4. Aðgerðum til að draga úr áhættu meðal sérstakra áhættuhópa,
  5. Stuðningi við eftirlifendur,
  6. Eflingu þekkingar á sviði sjálfsvíga og sjálfsvígsforvarna.

Sigrún Daníelsdóttir verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis og formaður hópsins mun kynna aðgerðaáætlunina í dag föstudaginn 4. maí á málþingi geðssviðs Landspítala um sjálfsvígsforvarnir. Málþingið fer fram á Hótel Sögu – Súlnasal og stendur frá kl. 13. – 16.

  • Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi – skýrsla starfshóps
  • Dagskrá málþings Landspítalans
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?