FME hefur hvorki kallað eftir upplýsingum né sent VR afrit af bréfum eða úrskurði sínum í málefnum stjórnar LV. Einu upplýsingarnar sem VR hefur fengið um málið er á vefsíðu FME og í yfirlýsingum „stjórnar“ LV.
Þessi vinnubrögð eru með ólíkindum hjá stofnun sem kennir sig við, og predikar nú hæst, um faglega og góða stjórnarhætti og vinnubrögð. Við höfum falið lögmanni félagsins að senda greinargerð og kalla eftir gögnum frá FME.
Einnig er ótrúlegt að FME skuli ekki taka afstöðu til þess hvort lög um fasteignalán, þar sem kveðið er á um sértækar skyldur vegna lána með breytilegum vöxtum í 34. gr. laga nr. 118/2016 hafi verið brotin með ákvörðun stjórnar LV um hækkun vaxta?
Líklega er þetta ein af mörgum ástæðum þess að FME og lífeyrissjóðirnir skrapa botninn hvað traust varðar í íslensku samfélagi og sú staðreynd að FME mælist jafnvel neðar en þær stofnanir sem það á að hafa eftirlit með. Geri aðrir betur!
Málið er að verða einhverskonar farsi og líklega fordæmalaust að einstaklingar neita að víkja úr stjórn með þeim hætti sem við erum að verða vitni af og ljóst mál að Samtök atvinnulífsins með stuðningi FME og fráfarandi stjórnarmönnum gera tilraun til að taka völdin yfir lífeyrissjóðnum okkar. Hvað með íhlutun tengdra aðila atvinnulífsins í þessu máli?
Það er ljóst að framundan er mikil og hörð barátta almennings um yfirráð yfir eigin sjóðum sem endar vonandi á lagasetningu þar sem sjóðfélagar sjálfir kjósa stjórnir sjóðanna, þ.e. ef FME treystir þeim til þess.