Samþykkt voru ný lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun og ríkisábyrgðir (Ferðaábyrgðasjóður), sem gerir ferðaskrifstofum kleift að endurgreiða ferðalöngum vegna ferða sem var aflýst eða niður felldar vegna kórónuveirupestarinnar.
Félagsmenn Neytendasamtakanna geta haft samband við samtökin og fengið frekari upplýsingar og aðstoð, sé þess óskað. Álag á símkerfið er mikið um þessar mundir og eru félagsmenn hvattir til að senda tölvpóst (ns@ns.is) með nafni, símanúmeri og hvað málið varðar. Sértu félagsmaður, verður haft samband við þig eins fljótt og auðið er. Hægt er að skrá sig hér.
Neytendasamtökin lýstu sig samþykk frumvarpinu, en gerðu þó nokkrar athugasemdir í umsögn sinni við það, og sýnu fleiri við breytingartillögu á því, þar sem samtökunum þóttu þær draga nokkuð úr rétti neytenda.
Neytendasamtökin fagna því að óvissu hafi verið eytt og nú stendur ekkert í vegi fyrir tafarlausum endurgreiðslum. Hvetja samtökin ferðaskrifstofur að ganga hreint til verks og klára endurgreiðslur til ferðalanga fljótt og örugglega. Jafnframt eru félagsmenn hvattir til að láta Neytendasamtökin vita, verði dráttur þar á. Neytendasamtökin benda á að ferðalangar eiga rétt á dráttarvöxtum vegna vangoldinnar endurgreiðslu, hafi hún ekki borist innan 14 daga frá niðurfellingu eða aflýsingu ferðar.
https://gamli.frettatiminn.is/logmannsstofan-malsvari-rekur-innheimtumal-a-hendur-ferdaskrifstofu-vegna-ferdar-menntaskolans-a-akureyri/