• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Creditinfo sektað um 38 milljónir vegna rangra skráninga

Creditinfo

Skráning umdeildra skulda á vanskilaskrá er óheimil – Lögheimtan og Creditinfo

Brutu ítrekað gegn neytanda - Lögheimtan, sem fór með innheimtu lánsins, reyndi ítrekað að skrá skuldina á vanskilaskrá Creditinfo

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. júlí 2023
in Fréttir, Innlent, Neytendur, Viðskipti
A A
0

Lögheimtan og Creditinfo virtu fyrri úrskurð Persónuverndar að vettugi þrátt fyrir athugasemdir og brutu ítrekað gegn neytanda

Persónuvernd birti úrskurð í máli neytanda sem kvartaði yfir skráningu á vanskilaskrá Creditinfo Lánstrausts hf., með liðsinni Hagsmunasamtaka heimilanna. Málið á rætur að rekja til ágreinings við Landsbankann um uppgjör eftirstöðva bílaláns með ólöglegri gengistryggingu.

Lögheimtan, sem fór með innheimtu lánsins, reyndi ítrekað að skrá skuldina á vanskilaskrá Creditinfo, þrátt fyrir að vera fyllilega ljóst að hún væri umdeild. Samkvæmt skilyrðum starfsleyfis Creditinfo er óheimilt að skrá umdeildar kröfur á vanskilaskrá, en þrátt fyrir það þurfti neytandinn árum saman að standa í sífelldum bréfasendingum til að mótmæla slíkum skráningum.

Lögheimtan höfðaði á endanum dómsmál til að innheimta skuldina og tókst að sannfæra dómara um að fallast á kröfu bankans. Fjórum dögum eftir að dómurinn var kveðinn upp í héraði fór Lögheimtan fram á að upplýsingar um hann yrðu skráðar á vanskilaskrá, en þá voru 24 dagar eftir af lögbundnum fresti til að áfrýja dómnum til Landsréttar. Með því virti Lögheimtan að vettugi eldri úrskurð í máli félagsmanns Hagsmunasamtaka heimilanna þar sem Persónuvernd kvað á um að Lögheimtunni hefði verið óheimilt að skrá dóm á vanskilaskrá sem enn væri unnt að áfrýja.

Daginn eftir að beiðni um skráningu dómsins á vanskilaskrá barst Creditinfo var neytandanum send tilkynning um að vanskil yrðu skráð 17 dögum síðar ef upplýsingar um uppgjör skuldarinnar myndu ekki berast innan þess tíma. Neytandinn mótmælti skráningunni rúmum sólarhring áður en sá frestur rann út en engu að síður var skuldin skráð á vanskilaskrá daginn áður en fresturinn rann út þegar enn voru 6 dagar eftir af áfrýjunarfresti dómsins. Þrátt fyrir að neytandinn hygðist áfrýja dómnum neitaði Creditinfo að afskrá hann af vanskilaskrá og varð ekki við mótmælunum fyrr en neytandinn hafði sótt um áfrýjunarleyfi og komið gögnum því til staðfestingar á framfæri.

Með liðsinni Hagsmunasamtaka heimilanna beindi neytandinn í kjölfarið kvörtun til Persónuverndar yfir fyrrnefndri háttsemi Lögheimtunnar og Creditinfo, sem hefur nú um tveimur árum seinna komist að niðurstöðu. Með úrskurðinum er staðfest að miðlun Lögheimtunnar á upplýsingum um dóminn til Creditinfo og færsla þeirra upplýsinga á vanskilaskrá áður en sá dómur varð endanlegur, hefði brotið gegn lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Hagsmunasamtök heimilanna hvetja neytendur sem eiga í ágreiningi við kröfuhafa til að vera vel á varðbergi gagnvart óréttmætum skráningum á vanskilaskrá, því þær geta haft mjög neikvæð áhrif á lánshæfismat og frelsi hins skráða til viðskipta á fjármálamarkaði. Neytendur sem telja á sér brotið geta leitað til samtakanna eftir óháðri ráðgjöf um réttarstöðu sína.

  • Sjá úrskurð Persónuverndar í málinu nr. 2020010604.
Umræða
Share17Tweet6
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    410 deilingar
    Share 164 Tweet 103
  • Næsta lægð nálgast

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?