Brot 322 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í norðurátt, á milli Miklubrautar og Háaleitsbrautar á móts við Álftamýri 24-30.
Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 783 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 49 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 74, en sá og ellefu aðrir ökumenn eiga yfir höfði sér sviptingu ökuréttinda vegna hraðaksturs á þessum vegarkafla.
Brot 109 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í austurátt, við Suðurlandsveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.066 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Átta óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 105.
Brot 76 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Sólarsölum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 300 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.
Brot 22 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, við Austurströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 170 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.
Vöktun lögreglunnar er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.