• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 20. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Einkahlutafélög, skattsvik og reiðufjársviðskipti

Embætti ríkislögreglustjóra auglýst

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. desember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Auglýst er eftir nýjum ríkislögreglustjóra í Lögbirtingablaðinu og er umsóknarfrestur til 18. desember. Sigríður Björk Guðjónsdóttir fyrrverandi ríkislögreglustjóri sagði af sér embætti í síðasta mánuði og hefur Úlfar Lúðvíksson fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum þegar lýst yfir áhuga á starfinu.

Auglýsing um starfið er svohljóðandi:

Embætti ríkislögreglustjóra laust til umsóknar

Auglýst er laust til umsóknar embætti ríkislögreglustjóra. Leitað er að öflugum leiðtoga með skýra sýn og getu til þess að leiða fólk til árangurs, í þeim tilgangi að móta og efla starfsemi embættisins.

Hæfniskröfur.

  • Öflug leiðtogahæfni og farsæl reynsla af stjórnun og stefnumótun er skilyrði.
    Rík samskipta- og samstarfshæfni er skilyrði.
    Þekking og yfirsýn yfir verkefni lögreglunnar og skýr framtíðarsýn varðandi embætti ríkislögreglustjóra og þróun löggæslu er skilyrði.
    Þekking og reynsla á sviði reksturs og áætlanagerðar er skilyrði.
    Þekking og reynsla af umbótastarfi er kostur.
    Reynsla af alþjóðasamstarfi er kostur.
    Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
    Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
    Dómsmálaráðherra skipar í embætti ríkislögreglustjóra til fimm ára í senn sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að fela nefnd að fara yfir þær umsóknir sem berast og á nefndin að skila ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Um laun og starfskjör ríkislögreglustjóra fer samkvæmt 39. gr., sbr. 39. gr. a., laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Hlutverk og ábyrgð.

Umsókn skal vera skrifleg og skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir færni viðkomandi til að gegna embættinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í 28. gr. laga nr. 90/1996 og auglýsingunni. Í umsókninni skulu einnig koma fram upplýsingar um hvern og einn þeirra þátta sem tilgreindir eru í 28. gr. lögreglulaga og auglýsingunni auk annarra upplýsinga sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf ríkislögreglustjóra. Með umsókn skulu fylgja afrit af prófskírteinum.

Ríkislögreglustjóri fer með málefni lögreglu í umboði dómsmálaráðherra. Ríkislögreglustjóri er forstöðumaður embættisins og ber faglega og fjárhagslega ábyrgð á starfi þess. Hlutverki ríkislögreglustjóra er nánar lýst í 5. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og reglugerð um starfsemi, hlutverk og ábyrgð embættis ríkislögreglustjóra nr. 325/2021. Eitt af hlutverkum ríkislögreglustjóra er að starfrækja lögregluráð sem er formlegur samráðsvettvangur lögreglustjóra og er ríkislögreglustjóri formaður ráðsins. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.

Umsóknarfrestur er til og með 18. desember og skal umsóknum skilað inn í gegnum Starfatorg. Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að liðnum umsóknarfresti. Upplýsingar um starfið veitir Bryndís Helgadóttir, settur ráðuneytisstjóri (bryndis.helgadottir@dmr.is) og Unnur Helgadóttir, mannauðsstjóri (unnur.helgadottir@dmr.is). – Dómsmálaráðuneytið.

Úlfar: Kerfisbreytingar drifnar áfram af vók hugmyndafræði

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    Óvissustig: Viðvaranir frá Veðurstofu

    54 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Neituðu að taka niður upplogna níðgrein um meint barnaníð

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Líshættuleg líkamsárás er Palestínumenn og Íslendingar hittust

    67 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • ,,Verulega ósmekkleg ummæli frá Hallgrími Helgasyni sem varða við lög“

    113 deilingar
    Share 45 Tweet 28
  • Setja pólitíska hagsmuni sína í fyrsta sæti

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?