Hér er það helsta úr dagbók lögreglu frá klukkan 17:00 til klukkan 05:00. Þegar þetta er ritað gista þrír í fangageymslu lögreglu. Alls eru 60 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu. Listinn er ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes:
Ökumaður stöðvaður í akstri grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og vímuefna. Í ljós kom að ökumaður var einnig sviptur ökuréttindum. Laus eftir hefðbundið ferli.
Ökumaður stöðvaður í akstri grunaður um akstur undir lyfja. Ökumaður var þá einnig sviptur án gildra ökuréttinda en var laus úr haldi lögreglu eftir sýnatöku.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður- Garðabær- Álftanes:
Lögregla hafði afskipti af ökumanni sem reyndist ekki vera kominn með aldur til þess að aka bifreið. Ásamt ökumanni voru í bifreiðinni nokkrir jafn ungir aðilar sem allir voru sóttir af foreldrum á lögreglustöð.
Lögreglustöð 4 – Grafarvogur- Mosfellsbær- Árbær:
Lögregla kölluð til vegna umferðaróhapps þar sem ökumaður hafði ekið út af. Ökumaður var farinn af vettvangi en vitni voru að atvikinu og málið er í rannsókn hjá lögreglu.

