• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 23. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samtök tryggingafélaga staðin að ósannindum

Samtök tryggingafélaga staðin að ósannindum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. desember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Í nýlegri greinargerð Samtaka fyrirtækja á fjármálaþjónustu (SFF) hefur nú verið viðurkennt að ekkert var hæft í fullyrðingum hagfræðings samtakanna um hátt samkeppnisstig á vátryggingamarkaði. Hann hélt þessu fram í viðtali við Morgunblaðið 14. maí síðastliðinn.

FÍB skrifar

Eftir ábendingar frá FÍB um að SFF væri með þessum og ýmsum öðrum fullyrðingum að beita sér gegn samkeppni tryggingafélaga sendi Samkeppniseftirlitið athugasemdir til SFF og óskaði skýringa. Þær bárust 2. október og voru áframsendar til FÍB þann 14. nóvember.

Í viðtalinu við Morgunblaðið sagði hagfræðingur SFF að meint léleg afkoma af vátryggingastarfsemi væri vísbending um hátt samkeppnisstig á innlendum vátryggingamarkaði vegna hreyfanleika neytenda sem hafi mælst umtalsvert meiri en í öllum löndum Evrópusambandsins. Þessi fullyrðing var ekki nánar rökstudd en tekin trúanleg.

Ekkert um tryggingar í meintri mælingu

Í greinargerð SFF til Samkeppniseftirlitsins segir að horft hafi verið til könnunar Gallup um hreyfanleika á fjármálamarkaði fyrir SFF sem birt var 30. apríl 2024. Meinið er bara að í þeirri könnun var enga spurningu að finna um hreyfanleika á vátrygginga­markaði. Aðeins var spurt um hlutfall þeirra sem skipt hafa um þjónustuaðila fyrir sparnaðarreikning, greiðslukort og húsnæðis­lán. Það segir ekkert um hreyfanleika tryggingataka. Fullyrðingin um að mæling sýndi hátt samkeppnisstig á vátryggingamarkaði var því með öllu ósönn.

Þetta var ekki eina atriðið í viðtalinu við hagfræðing SFF sem FÍB taldi ámælisvert. FÍB sagði að fullyrðingar um tap í vátryggingastarfsemi sem byggðu á löngu úreltum tölum hefðu brotið gegn banni við opinberu fyrirsvari SFF um atriði sem snúa að viðskiptakjörum og verðlagningu. Enginn vafi lék á því að skilaboðin til tryggingafélaganna voru að þau gætu varist óskum tryggingataka um lægri iðgjöld með því að bera fyrir sig hinn villandi fréttaflutning um laka afkomu og mikla samkeppni. Trygginga­takar fengu sömu röngu skilaboð, að vegna hins meinta bága ástands gætu þeir ekki vænst betri kjara.

Málið er nú til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    Heiða Björg í leynihópi – „rústum þessum gaurum“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Aðgangi að samfélagsmiðlum á Íslandi jafnvel lokað

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Hreinsun og uppsagnir í Mennta- og barnamálaráðuneytinu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðar skaða ekki fiskistofna né lífríki sjávar

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Aðgerðir í geðheilbrigðismálum

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?