,,Til þess að ná í gegnum þessa slikju, þarf að taka sterkt til orða, það þarf í rauninni að öskra svo að einhver heyri í þér“
Ekkert varð úr að Hatarar kæmu í viðtal í Kastljósið þar sem að þeir eru í fjölmiðlabanni. Mikið hefur verið rætt um hversu pólitískir þeir eru og jafnvel velt upp hvort að óhætt sé að senda þá til Ísrael, en textar þeirra eru til vitnis um að boðskapurinn er pólitískur.
Þeir hafa m.a. samið lagið Spillingardans, þar sem er sungið er um Kapítalista andskotans, gróðafíkn og nautnadans, þá bökuðu þeir köku rétt fyrir kosningar í söngvakeppninni og er það ádeila og háð á Bjarna Ben sem og textinn: Alhliða blekkingar. Einhliða refsingar. Auðtrúa aumingjar. Flóttinn tekur enda. Tómið heimtir alla, sem á vel við sem ádeila á íslenska pólitík. Þá gagnrýna þeir einnig neysluhyggjuna ofl.
Tekið var viðtal við þá í Menningingunni í Kastljósi þann 1. mars 2017 og verðum við að láta það duga á meðan hljómsveitini er í fjölmiðlabanni.