• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fólkvangurinn Hlið á Álftanesi stækkaður

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. júní 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur undirritað auglýsingu um stækkun friðlýsingar fólkvangsins Hliðs á Álftanesi. Friðlýsingin er hluti af átaki stjórnvalda í friðlýsingum, en nýtt vefsvæði átaksins var opnað í dag.
Hlið var friðlýst sem fólkvangur árið 2002. Markmið friðlýsingarinnar er að tryggja landsvæði til útivistar og almenningsnota. Fjaran og aðliggjandi sjávarsvæði eru sérstaklega áhugaverð til náttúruskoðunar svo sem fugla- og fjöruskoðunar, en meðal tegunda sem finnast innan fólkvangsins eru margæs, æðarfugl, rauðbrystingur, sendlingur og tildra. Aðgengi að svæðinu er gott og því er það sérstaklega ákjósanlegt til útikennslu. Með stækkuninni er landsvæði þar sem áður var gert ráð fyrir byggingarlóðum orðið hluti fólkvangsins.
Undirritunin fór fram í gær á Hliði að viðstöddum bæjarstjóra og fulltrúum bæjarstjórnar Garðabæjar, starfsfólki sveitarfélagsins, ráðuneytisins og Umhverfisstofnunar. Að lokinni undirritun var boðið til pönnukökuveislu hjá Jóhannesi Viðari Bjarnasyni, verti í Hliði.
 
Frá undirritun stækkunar friðlýsingar fólksvangsins Hliðs á Álftanesi.

Vefsvæðið fridlysingar.is kominn í loftið

Ný hugsun – ný nálgun er yfirskrift átaks í friðlýsingum sem umhverfis- og auðlindaráðuneytinu vinnur nú að í samstarfi við Umhverfisstofnun. Í dag var opnað nýtt vefsvæði átaksins á slóðinni fridlysingar.is.
Á vefsvæðinu er að finna almennar upplýsingar um friðlýsingar auk upplýsinga um fjölbreytt verkefni átaksins. Annars vegar hefur verið unnið markvisst að friðlýsingum ólíkra svæða á Íslandi þar sem þörf er talin á vernd. Hins vegar eru tiltekin átaksverkefni sem m.a. snúa að því að kanna áhrif friðlýsinga á nærsvæðum þeirra, auka fræðslu um eðli og tilgang friðlýsinga og auka umræðu um náttúruverndarmál í samfélaginu.
 

 
Ný hugsun – ný nálgun á fridlysingar.is

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    212 deilingar
    Share 85 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?