• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar enn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. ágúst 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ríflega 44% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina sem eru um 3 prósentustigum færri en í síðasta mánuði. Þetta er svipað hlutfall og sitjandi ríkisstjórn hefur minnst mælst með, en það var í desember 2018.

 

Stuðningur við ríkisstjórn í maí 2022

Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða og minnkar fylgi Vinstri grænna og Flokks fólksins á sama tíma og fylgi Framsóknarflokksins eykst. Liðlega 8% segjast myndu kjósa Vinstri græn færu kosningar til Alþingis fram í dag, sem eru um tveimur prósentustigum færri en í síðustu mælingu. Þetta er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan í aðdraganda alþingiskosninga 2013. Fylgi Flokks fólksins minnkar um ríflega eitt prósentustig milli mælinga, en rösklega 6% segjast myndu kjósa flokkinn nú. Fylgi Framsóknarflokksins eykst um nær tvö prósentustig, en tæplega 18% segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag.

Fylgi flokka í maí 2022

Fylgi annarra flokka breytist lítið eða um á bilinu 0,1 – 0,4 prósentustig. Liðlega 20% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, næstum 15% Pírata, liðlega 14% Samfylkinguna, tæplega 10% Viðreisn, 5% Sósíalistaflokk Íslands og rúmlega 4% Miðflokkinn.

Rúmlega 7% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp og liðlega 8% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Spurt var:

  • Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
  • En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?
  • Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
  • Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 2. til 31. maí 2022. Heildarúrtaksstærð var 10.548 og þátttökuhlutfall var 51,9%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,2%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    212 deilingar
    Share 85 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?