Lögreglan á Vestfjörðum: Af verkefnum liðinnar viku:
Í vikunni sem leið voru alls 14 ökumenn kærðir fyrir að aka yfir leyfilegum hámarkshraða. Sá sem hraðast ók var mældur á 120 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km m.v. klst. Þá var einn mældur á 90 km hraða á Skutulsfjarðarbraut, þar sem hámarkshraði er 60 km.
Hámarkshraði er miðaður við bestu aðstæður. Það er engin ástæða til að aka hraðar enda er hámarkshraði ákvarðaður með umferðaröryggi í huga. Áfram mun lögreglan fylgjast með hegðun ökumanna í umferðinni. Allt til að fyrirbyggja slys.
Afskipti voru höfð af tveimur ökumönnum í vikunni vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum áfengis. Annar þeirra var í akstri í Skutulsfirði en hinn í Önundarfirði. Afskiptin voru höfð að nóttu til. Beðið er niðurstöðu viðeigandi sýnarannsóknar.
Nokkrir ökumenn voru kærðir fyrir lagningarbrot, aðallega í miðbæ Ísafjarðar. Hvatt er til þess að stöðvun og lagning ökutækja sé framkvæmd í samræmi við lög og merkingar, til öryggis fyrir aðra vegfarendur en einnig til að koma í veg fyrir sektir.
Nokkur umferðaróhöpp urðu í vikunni en ekkert þeirra hafði í för með sér alvarleg meiðsl.
Eins og komið hefur áður fram fór lögreglan á Vestfjörðum og landvörður í eftirlitsflug með þyrlu Landhelgisgæslunnar m.a. í tilefni þess að myndband af hvítabirni hafði birst á samfélagsmiðlum. Þó svo að um hafi verið að ræða þriggja vikna gamalt myndband þá þótti rétt að ganga úr skugga um að björnin hafi ekki numið land, a.m.k. á Hornstrandafriðlandinu. En björninn hafði verið á ísjaka um 50 sjómílum út af Straumnesi þegar myndbandið var tekið. Enginn ummerki um hvítabjörn sáust í þessu tveggja klukkustunda eftirlitsflugi.
Kvartanir hafa borist um hraðakstur nokkurra ökumanna hópferðabifreiða, eða ógætilegan akstur. Hvatt er til þess að ökumenn slíkra farartækja sýni sérstaka aðgætni, enda um atvinnubílstjóra að ræða, sem ættu að vera öðrum góðar fyrirmyndir.
Í gær, mánudaginn 4 ágúst, var tilkynnt um umferðaróhapp í Bolungarvíkurgöngum. En þá mun hliðarspegill bifreiðar hafa rekist utan í tvo reiðhjólamenn, sem hjóluðu í vegkantinum. Báðir mennirnir féllu af hjólum sínum og voru fluttir til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, á Ísafirði. Þeir útskrifuðust fljótlega, enda hlutu ekki alvarleg meiðsl, skrámur og minniháttar áverka.
Af þessu tilefni er mikilvægt að hafa í huga að skv. umferðarlögum skal ökumaður ekki aka nær reiðhjólafólki en sem nemur 1,5 metra. Í þessu tilviki virðast reiðhjólamennirnir ekki hafa verið vel sýnilegir, í dökkum yfirhöfnum og ekki áberandi ljós eða annað sem mikilvægt er að vera með á reiðhjóli, til að vekja athygli á sér. Þá, eins og gefur að skilja, er birtan í jarðgöngunum ekki sú sama og utan þeirra.