• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ráðherra útskýrir ákvörðun vegna embættis skólameistara

Ráðherra útskýrir ákvörðun vegna embættis skólameistara

Ákvörðun um auglýsingu á embætti skólameistara

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
5. desember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ársæll Guðmundsson skólameistari Borgarholtsskóla var boðaður til fundar í mennta- og barnamálaráðuneytinu hinn 25. nóvember síðastliðinn. Tilefnið var að skipunartími hans í embætti skólameistara Borgarholtsskóla rennur út í lok júní á komandi ári.

Fundurinn fór síðan fram fimmtudaginn 27. nóvember. Fundinn sátu ráðuneytisstjóri, aðstoðarmaður ráðherra og mannauðs- og gæðastjóri ráðuneytisins en ráðherra var erlendis. Ársæll var upplýstur með lögbundnum fyrirvara að ráðherra hefði tekið ákvörðun, sbr. 23. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, um að auglýsa stöðu skólameistara Borgarholtsskóla lausa til umsóknar þegar skipunartíma Ársæls lýkur hinn 30. júní 2026.

Grundvöllur þessarar ákvörðunar var skýrður fyrir Ársæli, sem eru fyrirhugaðar umfangsmiklar breytingar á framhaldsskólastiginu með nýjum svæðisskrifstofum. Á þessum tímapunkti ríkir óvissa varðandi útfærslu þeirra breytinga en gert er ráð fyrir að endanlegar tillögur að nýju fyrirkomulagi liggi fyrir í byrjun næsta árs.

Skólameistarar framhaldsskóla eru skipaðir tímabundið til fimm ára. Áður en skipunartími rennur út er lagt mat á hvort ástæða sé til að auglýsa embætti skólameistara laust til umsóknar. Það er heimilt samkvæmt lögum ef skólameistara er tilkynnt um það eigi síðar en sex mánuðum áður en skipunartími hans rennur út. Í ljósi áðurnefndra boðaðra breytinga var talið rétt að auglýsa stöðuna þannig að umsækjendur geti metið hvort þeir vilji leiða skólann í gegnum slíkar breytingar.

Tekið var fram á fundinum að ekkert væri því til fyrirstöðu að Ársæll sækti um stöðuna ef hann kysi svo. Það var sérstaklega tekið fram að í ákvörðun ráðherra fælist ekki yfirlýsing um vantraust í hans garð. Ákvörðun um að auglýsa stöðuna varðaði að engu leyti athugasemdir skólameistarans við hugmyndir ráðherra að breytingum. En ráðherra hefur sérstaklega hvatt til umræðu um þær hugmyndir og heimsótt alla 27 framhaldsskóla ríkisins í þeim tilgangi.

Ársæll undirritaði móttöku á bréfi dagsettu 27. nóvember þar sem ákvörðun ráðherra um að auglýsa embætti skólameistara við Borgarholtsskóla laust til umsóknar kom fram.

Annar fundur var haldinn með Ársæli hinn 1. desember, þar sem meðal annars var rætt um komandi tíma í störfum Ársæls. Engin ákvörðun liggur fyrir á þessum tímapunkti um þau mál. Ráðherra var óvænt kallaður á spítala til rannsókna og þó svo að Ársæll hafi ekki verið upplýstur um þær aðstæður, var hann á grundvelli upplýsinga frá ráðuneytisstjóra meðvitaður um að vænta mætti frekara samtals í næstu viku.

Af gefnu tilefni er rétt að komi fram að ekki hefur verið ákveðið að framlengja skipun neins skólameistara, með lögbundnum 6 mánaða fresti, eftir 17. september síðastliðinn. Þá voru hugmyndir um nýjar svæðisskrifstofur framhaldsskóla kynntar á vef ráðuneytisins. Síðast voru auglýst laus embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Austur-Skaftafellssýslu, skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og Verkmenntaskóla Austurlands hinn 24. júní sl.

Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun á þessum tímapunkti um að auglýsa aðrar stöður skólameistara. Einungis ein ákvörðun þar að lútandi er framundan á árinu 2026. Sú ákvörðun verður tekin í samræmi við lög og þær aðstæður sem þá verða uppi, meðal annars varðandi stöðu fyrirhugaðra breytinga á framhaldsskólastiginu.

Hjá ríkinu eru ýmis fordæmi fyrir því að forstöðumönnum stofnana sé tilkynnt að embætti þeirra verði auglýst. Síðast var slík tilkynning send frá mennta- og barnamálaráðuneytinu vegna embættis skólameistara í desember 2023. Jafnframt var tveimur embættismönnum þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneytis, tilkynnt um að ákveðið hefði verið að auglýsa embætti þeirra laus til umsókna árin 2019 og 2020.

Umræða
Share4Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    61 deilingar
    Share 24 Tweet 15
  • Alþingismanni hótað

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Stjórnarsáttmáli sem Viðreisn og Samfylkingin meintu raunverulega ekki neitt með

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?