• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 22. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

400 milljónum varið til að lækka tannlæknaþjónustu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. janúar 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Greiðsluþátttaka lífeyrisþega vegna tannlæknaþjónustu lækkaði 1. janúar síðastliðinn og sömuleiðis greiðsluþátttaka almennings vegna nauðsynlegra tannlækninga af völdum meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Þetta er hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin. Áætlað er að fjármunir sem varið verður til þessara lækkana á greiðsluþátttöku nemi um 380 milljónum króna á ársgrundvelli.

Lækkun greiðsluþátttöku lífeyrisþega fyrir tannlækningar
Frá og með 1. janúar sl. eykst greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í almennum tannlæknakostnaði öryrkja og aldraðra úr 57% í 63% og kostnaður þeirra lækkar að sama skapi. Áætlaður útgjaldaauki sjúkratrygginga vegna þessa nemur um 200 milljónum króna á ársgrundvelli. Þetta er hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin.

Lækkun greiðsluþátttöku almennings vegna sértækra tannvandamála
Þann 15. júlí síðastliðinn tók gildi rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands og tannlækna um nauðsynlegar tannlækningar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma samkvæmt reglugerð nr. 451/2013. Fram að því höfðu endurgreiðslur þeirra sem áttu rétt á þeim miðast við gjaldskrá sem ekki hafði verið uppfærð til verðlags frá árinu 2014. Með nýrri gjaldskrá samhliða rammasamningnum hækkaði greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í kostnaði allra sem áttu rétt á endurgreiðslu.

Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna nauðsynlegra tannlækninga aldraðra og öryrkja hefur numið 80% en 50% hjá öðrum. Frá og með 1. janúar hækkar greiðsluþátttaka sjúkratrygginga hjá síðarnefnda hópnum í 80% til jafns við lífeyrisþega. Áætlaður útgjaldaauki sjúkratrygginga vegna þessa nemur 180 milljónum króna á ársgrundvelli.

https://gamli.frettatiminn.is/20/11/2021/60-ekki-farid-til-tannlaeknis-a-sidustu-fimm-arum-ljotar-sogur/

Umræða
Share27Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    129 deilingar
    Share 52 Tweet 32
  • Slökkviliðið berst við elda í Kópavogi

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Sturluð staðreynd

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    378 deilingar
    Share 151 Tweet 95
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?