• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 18. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Aldrei verið betra að búa á Íslandi – viðtal við Bjarna Benediktsson

Bjarni Benediktsson - Ljósmynd: Ninni Andersson/Regeringskansliet

Bjarni Ben hættir sem formaður og þingmaður

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. janúar 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki að gefa kost á sér í formannskjöri á komandi landsfundi flokksins. Hann ætlar ekki að taka sæti á þingi síðar í mánuðinum.

Frá þessu greinir Bjarni á Facebook:

Kæru vinir,

Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér í formannskjöri á komandi landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Það hafa verið forréttindi og heiður að leiða flokkinn frá árinu 2009. Ég skil sáttur við mín verk, þakklátur fyrir stuðninginn og stoltur af mínum störfum sem þingmaður í tæplega 22 ár.

Á mínum fyrstu árum í forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn var staðan í þjóðlífinu erfið. Mikið uppgjör var framundan og þörf fyrir endurreisn á sviði efnahagsmála. Við Íslendingar fengumst við einhverja mestu efnahagskrísu lýðveldistímans og mikil átök voru í þinginu um pólitíska stefnumörkun. Allt var undir fyrir Ísland á þessum örlagaríku tímum og ég lagði allt mitt af mörkum fyrir landið okkar ásamt samherjum í flokknum, og hef gert það alla tíð síðan.

Árangurinn sem við höfum náð frá því að flokkurinn tók sæti í ríkisstjórn að nýju árið 2013 hefur farið fram úr mínum björtustu vonum. Við búum í góðu þjóðfélagi, höfum staðið af okkur storma og áföll og erum í mikilli sókn. Lífskjör hafa vaxið stórum skrefum. Við getum sagt að hvergi sé betra að búa en á Íslandi. Staða heimilanna, atvinnulífsins og hins opinbera er öfundsverð í alþjóðlegum samanburði. Nýjum fyrirtækjum og spennandi störfum fjölgar með hverju árinu, vegna þess að fólk hefur tækifæri til að freista gæfunnar á sínum forsendum.

Grunnurinn að þessum árangri felst í trú á fólkið í landinu, tækifærum þess til að láta til sín taka og stefnu um að skapa megi mikil verðmæti fyrir landsmenn alla ef ríkið styður við samfélagið með réttum hætti og einkaframtakið fær að njóta sín. Þessar áherslur ruddu brautina að miklu vaxtarskeiði, landsmönnum hefur fjölgað, mikil ný útflutningsverðmæti orðið til og grunnur að sterkara velferðarkerfi var lagður. Þetta er sjálfstæðisstefnan í hnotskurn.

Ég hef fengið mörg tækifæri á sviði stjórnmálanna en aldrei tekið því sem sjálfsögðum hlut að endurnýja umboð mitt, síðast í kosningunum í nóvember, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk áfram flest atkvæði í kjördæmi mínu. Ekkert hefur þroskað mig meira og mótað í lífinu en að fá að glíma við öll þessi flóknu úrlausnarefni sem þingmaður og ráðherra, eiga samtal við kjósendur og standa þeim reikningsskil af verkum okkar.

Á þessum tímamótum hef ég hins vegar ákveðið að sækjast ekki eftir endurnýjuðu umboði til forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Nýafstaðnar kosningar skiluðu Sjálfstæðisflokknum næst flestum þingmönnum á Alþingi, þar sem hann var rúmu prósentustigi minni en sá stærsti.

Stærstu tveir flokkarnir eru báðir talsvert frá sínum fyrri hæðum, og sögulega eru úrslitin ekki nægilega góð fyrir okkur sjálfstæðismenn. En eftir langa setu í ríkisstjórn, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn tók ábyrgð á stjórn landsmálanna meðan aðrir reyndu að byggja sig upp í stjórnarandstöðu, vann flokkurinn ágætan varnarsigur.

Í stjórnarandstöðu opnast ný tækifæri fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem á að nýta kjörtímabilið til að styrkja samband sitt við hinn almenna kjósanda og skerpa á forgangsmálum. Á komandi landsfundi verður kosin forysta sem fær það hlutverk að móta áherslur kjörtímabilsins og vinna að góðum sigri flokksins í næstu kosningum. Ég finn að það er rétt ákvörðun að eftirláta öðrum að móta það starf.

Ég hef verið þingmaður í Suðvesturkjördæmi frá árinu 2003 og tók fyrst sæti á þinginu 33 ára gamall. Síðar í mánuðinum verð ég 55 ára. Þetta hefur verið lengri þingseta en ég hefði nokkurn tímann getað ímyndað mér og mikill heiður að hafa notið slíks trausts.

Undanfarna daga hef ég átt með mínum nánustu til að líta yfir farinn veg, ræða og hugsa um framtíðina. Ég finn að þetta er rétti tíminn til að breyta til. Það er ekkert launungarmál að ég mun njóta þess að hafa meiri tíma í framtíðinni með fjölskyldunni, sem hefur farið stækkandi, og til að sinna öðrum hugðarefnum.

Í ljósi þessara aðstæðna hef ég ákveðið að taka ekki sæti á því þingi sem hefst síðar í mánuðinum. Næstu vikur ætla ég að taka mér frí en hyggst svo taka mín síðustu skref á pólitíska sviðinu og kveðja vini mína í Sjálfstæðisflokknum á landsfundinum sem framundan er, þar sem blásið verður til sóknar fyrir þjóðlífið allt.

Hér er ekki ætlunin að gera upp við allan þennan tíma, það geri ég e.t.v. síðar, en ég vil nota tækifærið og þakka öllu samferðarfólki mínu í fjölbreyttum hlutverkum, flokksfólki, þingmönnum úr ólíkum flokkum, ráðherrum, sveitarstjórnarfólki, starfsfólki á Alþingi og í stjórnarráðinu, embættismönnum og síðast en ekki síst þér, hinum almenna kjósanda, þakka ég öll samskiptin – saman höfum við unnið að því að gera gott samfélag enn betra.

Mínar bestu óskir til ykkar allra um farsælt nýtt ár.
Virðingarfyllst,
Bjarni Benediktsson

Umræða
Share3Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mesta lækkun fasteignaverðs í 11 ár

    Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    785 deilingar
    Share 314 Tweet 196
  • Karlar sem fremja sjálfsvíg – Einelti, falskar ásakanir og ofbeldi

    287 deilingar
    Share 115 Tweet 72
  • Togarar á strandveiðum

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    50 deilingar
    Share 20 Tweet 13
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    436 deilingar
    Share 174 Tweet 109
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?