368 sýni hafa verið greind vegna COVID-19
Á stöðufundi samhæfingarstöðvar Almannavarna í morgun koma fram að í gær voru fjögur tilfelli af COVID-19 sjúkdómum greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala.
Einnig kom upp eitt vafasýni. Allir einstaklingarnir eru á aldrinum 44-67 ára. Enginn er alvarlega veikur. Öll tengjast Ítalíu (Trentino) og Austurríki (Ischgl).
Samtals 37 einstaklingar hafa greinst með COVID-19 frá 28.2.2020. Tæplega 400 einstaklingar eru í sóttkví.
Samtals 368 sýni hafa verið greind vegna COVID-19 á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Þá ber þess að geta að 70 manns koma til landsins á morgun frá Ítalíu en það fólk dvaldi á hótelinu þar sem smit hafa þegar greinst í íslendingum.
Umræða