• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 12. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Rökrætt um lífeyrismál

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. mars 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
ASÍ stendur nú fyrir metnaðarfullum rökræðufundi um lífeyrismál og lífeyrissjóði á Selfossi. Þar er formönnum aðildarfélaga ASÍ, fulltrúum vinnandi fólks í stjórnum lífeyrissjóða, félögum í lífeyrisnefnd ASÍ og ungliðahreyfingunni  boðið til þátttöku.
Drífa Snædal formaður ASÍ skrifar pistil

Allt frá því samið var um skylduaðild að lífeyrissjóðum árið 1969 hefur verið fjörug umræða innan verkalýðshreyfingarinnar um lífeyrismál, og sömu sögu má segja um samfélagið allt. Þegar samningurinn var gerður var staðan sú að vinnandi fólk gat vænst þess að fá 17% af grunnlaunum verkafólks í ellilífeyri úr almannatryggingum. Atvinnuleysið var 7% og landið logaði í verkföllum. Samkomulag um skylduaðild að lífeyrissjóðum var hluti af lausn kjaradeilunnar þótt krafan hafi ekki verið hávær þegar fyrst var gengið til samninga. Launafólk hafði augljósa hagsmuni af þessu en atvinnurekendur voru líka í þeirri stöðu að fólk gat einfaldlega ekki hætt að vinna því það þýddi örbirgð. Grunnurinn að kerfinu voru S-in þrjú: Sjóðssöfnun, skylduaðild og samtrygging.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Lífeyrissjóðirnir eru stórir og stöndugir og ekki aðeins trygging fyrir vinnandi fólk heldur líka órjúfanlegur hluti af íslensku efnahagslífi. Þetta vekur auðvitað margar spurningar og álitaefni. Skerðingar almannatrygginga hófust í raun löngu áður en lífeyriskerfið var orðið fullþroskað, sem kemur sérstaklega illa við láglaunafólk og hefur dæmt hópa fólks til fátæktar í ellinni. Í gegnum lífeyrissjóðina er launafólk í raun líka í hlutverki fjármagnseigenda og stundum geta þeir hagsmunir stangast á, sem kallar á umræður um fjárfestingarstefnur og -ákvarðanir lífeyrissjóðanna. Við stöndum líka frammi fyrir þrýstingi um að hækka lífeyristökualdur í samræmi við hækkandi lífaldur. Lífaldurslenging er þó misjöfn eftir stétt og stöðu og það er langt í frá sjálfsagt að hér gildi það sama um alla.

Þessi málefni og fleiri eru til umræðu á rökræðufundi ASÍ sem lýkur í dag, en þetta er í fyrsta sinn sem ASÍ efnir til slíks rökræðufundar þar sem öll deilumál eru sett upp á borðið og samtalið tekið sem leiðir væntanlega af sér bætta ákvarðanatöku og stefnumótun.

Um Úkraínu

Þessa dagana hvílir yfir okkur öllum skuggi innrásar Rússa í Úkraínu. Miðstjórn ASÍ samþykkti á miðvikudag ályktun þar sem innrásin var fordæmd en jafnframt var hvatt til eftirfarandi:

  • Að fólk taki þátt í mótmælum við stríðsrekstur Rússa í Úkraínu
  • Að ríkisstjórn Íslands tali fyrir friðsamlegum lausnum á alþjóðavettvangi og leggi sín lóð á vogarskálarnar til að draga úr stigmögnun átakanna
  • Að stjórnvöld á Íslandi veiti Úkraínumönnum sem hér óska verndar, málsmeðferð og vernd og taki þegar í stað á móti hópum kvótaflóttafólks
  • Að lífeyrissjóðir okkar dragi til baka fjárfestingar tengdar Rússlandi
  • Að ríkisstjórn Íslands styðji áfram viðskiptaþvinganir gegn Rússum
  • Að aðildarfélög undirbúi fræðsluefni á úkraínsku um íslenskt samfélag og vinnumarkað en ASÍ mun gera slíkt hið sama.
  • Að aðildarfélög leggi til húsnæði ef þörf krefur og þau hafa tök á til að taka við flóttafólki frá stríðshrjáðum svæðum

Það er ábyrgð okkar að tala fyrir friði á ófriðartímum og leggja okkar til í þágu mannúðar.

Umræða
Share1Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?