Hríðarveðrið er smám saman að ganga niður norðvestanlands nú í morgunsárið. Það verða víða austan 8-15 m/s fyrri part dags, rigning með köflum og hiti 2 til 8 stig. Það hvessir eftir hádegi, en þá gengur í suðvestan 13-20 m/s með skúrum og síðar éljum og kólnandi veðri.
Dregur úr vindi í nótt og í fyrramálið og styttir upp austanlands. Snýst í norðan strekking annað kvöld með dálítilli snjókomu norðantil, en hægari vindur og léttir til um landið suðvestanvert. Svo er útlit fyrir hæglætis veður og bjartviðri víða um land á miðvikudag.
Veðurhorfur á landinu
Víða austan 8-15 m/s og rigning með köflum, hiti 2 til 8 stig. Gengur í suðvestan 13-20 eftir hádegi með skúrum og síðar éljum og kólnar.
Dregur úr vindi í nótt og í fyrramálið og styttir upp austanlands. Snýst í norðlæga átt 8-15 annað kvöld með dálítilli snjókomu norðantil, en hægari og léttir til um landið suðvestanvert. Hiti um og undir frostmarki.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s. Víða líkur á éljum, en bjartviðri austanlands. Hiti um og undir frostmarki. Snýst norðlæga átt 8-15 um kvöldið með snjókomu norðantil á landinu, en hægari og léttir til syðra.
Á miðvikudag:
Norðlæg átt 3-8 og léttskýjað, en 8-13 og dálítil él norðaustantil á landinu framan af degi. Frost 1 til 6 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn.
Á fimmtudag (skírdagur):
Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt með þurru og björtu veðri og vægu frosti, en 8-13 og lítilsháttar skúrir með suðurströndinni, og hiti að 5 stigum þar.
Á föstudag (föstudagurinn langi):
Suðaustanátt og rigning eða slydda með köflum, hiti 1 til 5 stig. Bjartviðri og hiti um frostmark fyrir norðan.
Á laugardag:
Suðaustan- og austanátt og víða dálítil rigning eða slydda, úrkomumest suðaustanlands. Áfram þurrt fyrir norðan. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst.
Á sunnudag (páskadagur):
Suðvestlæg átt og skýjað, en bjartviðri norðaustantil. Áfram milt í veðri.
Spá gerð: 05.04.2020 20:18. Gildir til: 12.04.2020 12:00.