• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þjónusta Arion banka til einstaklinga leggst af í Borgartúni 18

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
6. maí 2020
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Arion banki opnar Fyrirtækjakjarna í Borgartúni 18 –  Útibú bankans opna aftur 12. maí en með takmörkunum
 Öll almenn fyrirtækjaþjónusta Arion banka á höfuðborgarsvæðinu verður sameinuð á einum stað til að efla enn frekar þjónustu við fyrirtæki. Reynslumiklir sérfræðingar í fyrirtækjaþjónustu sem starfað hafa í útibúum bankans á höfuðborgarsvæðinu sameinast nú í Borgartúni 18 í svokölluðum Fyrirtækjakjarna sem mun þjóna litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Fyrirtækjakjarninn opnar 15. maí og munu fyrirtæki halda sömu tengiliðum hjá bankanum og allar viðskiptaupplýsingar, t.a.m. reikningsupplýsingar og útibúanúmer, verða óbreyttar. Sem fyrr geta fyrirtæki sótt einfaldari þjónustu, svo sem þjónustu gjaldkera, í útibú bankans um land allt.
Almenn þjónusta til einstaklinga mun þar með leggjast af í Borgartúni 18 nema að því leyti að fjármálaráðgjafar munu áfram taka á móti viðskiptavinum sem eiga fyrirfram bókaðan tíma. Viðskiptavinir á höfuðborgarsvæðinu, einstaklingar og fyrirtæki, sem þurfa á þjónustu gjaldkera að halda geta nálgast hana í útibúum Arion banka á Bíldshöfða í Reykjavík og við Smáratorg í Kópavogi. Sjálfsafgreiðslusvæðið í Borgartúni 18, eins og önnur sjálfsafgreiðslusvæði bankans, eru jafnframt opin allan sólarhringinn alla daga vikunnar. Þar er m.a. hægt að taka út og leggja inn seðla, greiða reikninga, millifæra og taka út gjaldeyri. Við bendum einnig á að hægt er að nálgast nánast alla bankaþjónustu í Arion appinu eða Netbanka Arion banka. Auk þess er þjónustuver bankans opið alla virka daga frá kl. 9-16.
Fyrir utan Borgartún 18 og útibú bankans í Hveragerði, sem mun sameinast útibúi Arion banka á Selfossi, munu útibú bankans aftur taka á móti gestum og gangandi frá og með 12. maí en þó með takmörkunum. Áfram verður nauðsynlegt að gæta að fjöldatakmörkunum og tveggja metra reglunni og þurfa viðskiptavinir því að takmarka komur í útibú eins og hægt er. Fyrir fjármálaráðgjöf eða flóknari erindi hvetjum við viðskiptavini okkar áfram til að bóka tíma með því að hafa samband við okkur. Nánar má lesa um opnunartíma útibúa Arion banka hér. 
Iða Brá Benediksdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka: „Markmiðið með stofnun Fyrirtækjakjarna er að bæta þjónustu við fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og auka aðgengi að sérfræðiþjónustu og ráðgjöf. Með því að vera með fyrirtækjaþjónustu okkar á einum stað styrkjum við þjónustuna. Við væntum þess að viðskiptavinir okkar kunni að meta þessar breytingar sem eru jafnframt liður í áframhaldandi þróun á þjónustu bankans til að mæta nýjum og breyttum þörfum viðskiptavina þar sem aukin áhersla er á stafrænar lausnir og persónulega fjármálaráðgjöf.“

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?